Karolina Fund: Fyrsta alíslenska bókin um getnað, meðgöngu og fæðingu

karolina
Auglýsing

Andrea Sól­eyjar og Björg­vins­dóttir er hug­mynda­smiður og höf­undur að fyrstu alís­lensku bók­inni um getn­að, með­göngu, fæð­ingu & sæng­ur­legu nefnd Bókin okk­aR. Aldís Páls­dóttir ljós­mynd­ari sér um mynd­skreyt­ingar í öllum fjórum köfl­unum þar sem sér­stök áhersla er lögð á íslenska nátt­úru og sér Haf­dís Rún­ars­dóttir ljós­móðir um allt fræði­legt efni bók­ar­innar í fram­setn­ingu Andreu. Bókin okkaR óskar þessa dag­ana eftir styrkjum frá öllum þeim sem geta séð af ein­hverjum fjár­munum og með þeim hætti er hægt að tryggja sér eitt ein­tak eða fleiri af bók­inni þegar hún kemur úr prentun á næsta ári. 

1. Um hvað fjallar Bókin okk­aR? 

Hún er stút­full af stað­reyndum og fróð­leik um hvað ger­ist innan í lík­ama konu í barn­eign­ar­ferl­inu en ekki síð­ur, hvað ger­ist hjá henni sjálfri. Bókin er tíma­laust upp­flett­i-­rit, en er jafn­framt hisp­urs­laus, skemmti­leg, hvetj­andi, svalandi og opin­ská. Auk þess að vera fræði­legt rit um efnið er bókin stút­full af reynslu­sögum íslenskra kvenna og karla, góðum ráðum og frá­sögnum af skemmti­legum atvikum sem for­eldrar hafa lent í. Það sem gerir bók­ina líka sér­staka eru frá­sagnir feðra, sem gleym­ast oft í ferl­inu öllu og að sög­urnar spanna þrjár kyn­slóð­ir, þ.e segja frá því hvernig margt hefur breyst í þessum efnum í gegnum árin. Bókin okkaR er því einnig heim­ild­ar­rit.

Auglýsing

2. Liggur ein­hver hug­sjón á bak­við bók­ina?

Andrea fékk hug­mynd­ina að Bók­inni okkaR fyrir um tíu árum síð­an, þegar hún gekk með elstu stelpuna sína. Hún seg­ist alltaf hafa gert ráð fyrir því að „ein­hver ann­ar“ myndi skrifa og gefa út svona rit en ekk­ert gerð­ist svo hún hófst handa af fullum krafti. Á leið­inni eign­að­ist hún síðan tvær stúlkur til við­bótar sem, ásamt öðru, varð til þess að útgáfa dróst á lang­in. „Ég vil státa mig af því að vera að vinna með þessum frá­bæru konum og þetta er í raun atvinnu­skap­andi kvenna­verk, sem við erum allar stoltar af að vera hluti af.“

3. Hvaðan kemur efni­við­ur­inn?

Frá íslenskum for­eldrum koma allar sög­urnar sem í bók­inni eru en fræði­legt efni bók­ar­innar er unnið í sam­vinnu við Haf­dísi Rún­ars­dótt­ur, þraut­þjálf­aðan hjúkr­un­ar­fræð­ing og ljós­móður sem og fleiri ljós­mæð­ur.

4. Er eitt­hvað sem þið viljið sjá að bókin skili út í sam­fé­lag­ið?

Það er engin íslensk bók til um barn­eign­ar­ferlið í heild sinni. Það er komin tími til að rit af þessum gæðum sé gefið út og mark­miðið er, ásamt því að fræða og svala fróð­leiks­þorsta verð­andi og ver­andi for­eldra, að skilja les­and­ann eftir með þá til­finn­ingu að engin spurn­ing varð­andi ferlið sé of vit­laus og að það sem skipti máli sé að konan treysti á sjálfa sig og lík­ama sinn þegar kemur að því að eign­ast barn. Ekki skemmir fyrir að myndir Aldísar eru sann­ar­lega til sóma fyrir íslenska nátt­úru og í raun fal­leg kynn­ing á Íslandi. Þess vegna er stefnan einnig sett á að gefa bók­ina út á öðrum tungu­mál­um, kynna feg­urð Íslands fyrir heim­inum og fylla upp í ann­ars hálf­tóman markað þegar kemur að bókum um þetta efni. Bókin okkaR er nefni­lega ein­stök því hún er sett fram á hisp­urs­lausan hátt og ekk­ert skafið af því hvað barn­eign­ar­ferlið getur bæði verið frá­bært og krefj­andi. Það er stutt eftir af söfn­un­inni o og því biðlum við til fólks að fara sem allra fyrst inn á heima­síðu Karol­ina Fund og leggja sitt að mörk­um. 

Verk­efnið er að finna hér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None