Vanvirðing ríkisstjórnarinnar - Hunsar fagráðuneytið og stofnar til illdeilna að óþörfum

ruv rikisutvarpid rúv ríkisútvarpið
Auglýsing

Allt stefnir í RÚV muni ekki fá jafn mikið fé á næsta ári, eins og Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur talað fyr­ir. Útvarps­gjaldið mun lækka í 16.400 krón­ur, í stað þess að vera 17.800 krón­ur. Þetta þýðir mörg hund­ruð millj­óna króna nið­ur­skurð hjá RÚV, sem mun bitna ekki síst á íslensku menn­ing­ar­efn­i. 

Margt hefur verið skrifað um mik­il­vægi RÚV að und­an­förnu, meðal ann­ars á vef Kjarn­ans. Óþarfi er að fara ræki­lega yfir þau skrif að þessu sinni, en tvö atriði eru umhugs­un­ar­verð, í ljósi stöð­unnar nú. 



Í fyrsta lagi er það van­virð­ing hjá rík­is­stjórn­inni við RÚV sem stofn­un, að standa í þessum aðgerð­um, í miklum ágrein­ingi við stjórn, stjórn­endur og starfs­fólk, auk fagráð­herr­ans, á þessum tíma­punkti. Það er end­ur­skipu­lagn­ing­ar­starf í gangi, sem hefur skilað árangri, og ákveðnar for­sendur liggja fyrir lang­tíma­á­ætl­unum sem Ill­ugi hafði sjálfur lagt upp. Ekki er því annað að sjá en að þetta sé fyrst og fremst póli­tísk aðgerð gagn­vart rík­is­fjöl­miðl­in­um, þar sem valtað er að yfir fagráðu­neytið sem fer með mála­flokk­inn, og sjón­ar­mið and­stæð­inga rík­is­fjöl­mið­ils­ins látin ráða ferð­inni. Þetta er mikið umhugs­un­ar­efni.



Í öðru lagi er það síðan meiri­háttar mis­lestur á aðstæðum hjá rík­is­stjórn­inni, að halda að þessi ákvörðun gagn­vart RÚV sé vin­sælda fallin eða í takt við vilja meg­in­þorra almenn­ings. Svo er ekki, ef marka má kann­anir þar sem hugur fólks til RÚV hefur verið kann­að­ur. Það sama má segja um menn­ing­ar­lífið á Íslandi almennt, sem hefur sýnt mikla sam­stöðu gagn­vart þessum áformum að und­an­förnu. Þar hljóma hinar ýmsu raddir og mis­jöfn sýn á póli­tíska kvarða. En sam­staðan gegn áformum um nið­ur­skurð gagn­vart RÚV er algjör.



Þetta gæti komið harka­lega í bakið á rík­is­stjórn­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None