Samvinna við færustu sérfræðinga skilar árangri

alþingi þing
Auglýsing

Páll Magn­ús­son fjöl­miðla­mað­ur, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri og blaða­maður til ára­tuga, fór mik­inn á dög­un­um, í við­tali á Bylgj­unni í þætt­inum Sprengisandi. Þar sagði hann fólk á þingi vera upp til hópa van­hæft og „lé­leg­t“. Sagði hann meðal ann­ars að svo virt­ist sem stjórn­mála­flokkum væri ekki að takast að laða að sér hæfi­leik­a­ríkt fólk

Nú skal ekk­ert lagt mat á þetta hjá Páli, og eflaust margir sem taka undir þetta, enda auð­velt að horfa úr fja­lægð á stjórn­mála­menn og finna þeim allt til forrátt­u. 



En það má líka nefna aðra hluti sem benda til þess að stjórn­mála­mönnum hafi tek­ist að taka réttar ákvarð­anir á lykilaugna­blik­um.



Á síð­ustu sjö árum, frá því að banka­kerfið hrundi eins og spila­borg og fjár­magns­höftum var komið á til að vernda íslenskan almenn­ing fyrir stjórn­lausu geng­is­falli krón­unn­ar, þá var staðan væg­ast sagt krefj­and­i. 



Þrátt fyrir heiftug átök stjórn­mála­manna þá tókst að koma saman áætl­un, í sam­starfi við sér­fræð­inga og vinna eftir henni. Það var áætlun sem byggði á lána­fyr­ir­greiðslu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) og fleiri ríkja, og vinnu sér­fræð­inga, inn­lendra og erlendra, í sam­starfi við stjórn­völd. 



Á árinu sem lýkur senn var lán AGS end­ur­greitt að fullu, og áætl­un­inni lauk þannig form­lega. Árang­ur­inn er aug­ljós. 



End­ur­reist banka­kerfi sem fjár­magnað er nær ein­göngu með inn­lánum almenn­ings, opin­berar skuldir á hraðri nið­ur­leið og stór skref hafa verið stigin til að losa um höft. Alveg eins og í til­fell­inu þegar búin var til áætlun í sam­starfi við AGS, þá byggir áætl­unin um losun hafta á sam­starfi við sér­fræð­inga, inn­lenda og erlenda. Árang­ur­inn hefur náðst fram með því að bera virð­ingu fyrir sér­fræði­þekk­ing­unni og leyfa henni að leiða fram bestu nið­ur­stöð­una. Þetta hefðu margir af þeim þing­mönn­um, sem nú eru hættir á þingi, mátt til­einka sér í meira mæli. Þá hefðu hugs­an­lega gagn­rýn­is­raddir á stöðu mála fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins fengið að heyr­ast á réttum stöð­um.



Árang­ur­inn í stjórn­mála­starf­inu eftir hrunið er aug­ljós, og það er þvert á flokkslínur og þrátt fyrir for­dæma­lausar ill­deilur þing­manna og átök innan stjórn­mála­flokka. Megi stjórn­mála­menn halda áfram að vinna að lausn mála með fær­ustu sér­fræð­ing­um, þegar þess þarf. Sem er kannski mun oftar en stjórn­mála­menn gera sér grein fyr­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None