Landsbankinn
Auglýsing

Kjara­ráð, sem skipað er Jónasi Þór Guð­munds­syni, Svan­hildi Kaaber og Huldu Árna­dótt­ur, ákvað 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn að hækka laun banka­stjóra Lands­bank­ans, Stein­þórs Páls­son­ar, langt umfram þær hækk­anir sem aðrar stéttir í land­inu hafa fengið fram í kjara­samn­ingum að und­an­förnu. Hækk­unin er um 20 pró­sent í einu skrefi, en frá því um mitt ár í fyrra hafa launin hækkað um 36 pró­sent. Stein­þór fær nú 1.950 þús­und á mán­uði.

Fram kemur í úrskurði kjara­ráðs að banka­ráð Lands­bank­ans hafi barist fyrir því að laun Stein­þórs yrðu hækk­uð, vegna þess að hann beri mikla ábyrgð og sé að vinna mik­ið. Hann eigi ein­fald­lega skilið að fá hærri laun. 



Í þessu er rétt að horfa fram­hjá því, að eflaust hefur Stein­þór staðið sig vel, og það eru mörg rök sem telja má til í þeim efn­um. Helst þó að rekstur Lands­bank­ans er orð­inn stöð­ug­ur, og efna­hags­reikn­ing­ur­inn sömu­leið­is, eftir mikið end­ur­reisn­ar­starf frá hruni, sem Stein­þór hefur leitt und­an­farin ár.



En margt það fólk sem kjara­ráð ákvarðar launin hjá hefur einnig nóg að gera, ber mikla ábyrgð og hefur staðið sig vel í starf­i. 



Stein­þór er rík­is­starfs­maður eins og allir starfs­menn Lands­bank­ans, enda á ríkið Lands­bank­ann, að 98,2 pró­sent leyti. Þess vegna er kjara­ráð að ákvarða launin hans. Það er óskilj­an­legt, að kjara­ráð meti það sem svo, að nú sé tíma­bært að hækka launin hjá þessum til­tekna starfs­manni langt umfram alla aðra. Rökin fyrir hækk­un­inni eru engin umfram þau, sem einnig má til­taka hjá hinum ýmsu sér­fræð­ingum og starfs­mönn­um, sem kjara­ráð ákvarðar launin hjá. 



Kjara­samn­ing­arnir sem gerðir hafa verið að und­an­förnu, hafa þótt glanna­leg­ir, að mati Seðla­banka Íslands, þar sem umsamdar hækk­anir eru langt umfram fram­leiðni­aukn­ingu í hag­kerf­inu í sögu­legu til­liti. Svona skila­boð, eins og kjara­ráð er að senda með þess­ari hækkun fyrir banka­stjóra rík­is­bank­ans, er ekki það besta sem fram gat komið á þessum tíma­punkti, svo ekki sé fastar að orði kveð­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None