Nú þurfa stjórnvöld að vanda sig

Auglýsing

Óttar Guð­jóns­son hag­fræð­ingur skrif­aði áhuga­verða grein í Morg­un­blaðið í gær, þar sem hann gerði að umtals­efni þá stöðu sem uppi er í banka­málum þjóð­ar­inn­ar. Stjórn­völd standa frammi fyrir krefj­andi stöðu, vegna þess hve hlut­falls­lega stórar fjár­magns­hreyf­ingar geta fylgt end­ur­skipu­lagn­ing­u á eign­ar­haldi hinna end­ur­reistu banka.

Mikil verð­mæti

Í grein sinni segir Ótt­ar: „Nú er sú staða uppi að rík­­is­­valdið á tvo af þrem­ur stóru bank­anna í land­inu og sölu­and­viði þess þriðja mun renna í rík­­is­­sjóð. Sam­tals eigið fé þess­­ara banka er m.v. síð­ustu töl­ur frá­ ­Seðla­bank­an­um rétt um 630 millj­­arðar króna. Heild­­ar­inn­lán í banka­­kerf­in­u voru um 1.876 millj­­arðar í lok nóv­­em­ber... Í ný­­legri grein­ingu Ótt­­ars Snæ­­dal hjá Sam­tök­um at­vinn­u­lífs­ins kom fram að al­­gengt eig­in­fjár­­hlut­­fall smærri banka í ná­granna­lönd­um okk­ar er milli 8 og 10% og stærri bank­ar milli 4 og 6%, sam­an­­borið við tæp 20% hjá okk­­ur. Þetta seg­ir mér að mjög lík­­­legt sé að með ein­beitt­um vilja ­megi greiða út fast að helm­ingi þess hluta­fjár sem bank­­arn­ir ráða yfir í dag, án þess að þjón­usta, hlítni við lög eða regl­ur skað­ist. Þannig að ef ­bank­­arn­ir væru seld­ir fjár­­­fest­um á 60 til 80% af virði eig­in fjár, þá ­gætu fjár­­­fest­­arn­ir greitt sér út stór­an hluta kaup­verðs­ins á til­­­tölu­­lega ­fáum árum.

Óttar nefnir síð­an, að ríkið þurfi að skoða það sér­stak­lega að greiða út úr bönk­unum þar sem ríkið er eig­andi, veru­legan arð af óþörfu eigin fé áður en þeir verði seld­ir. 

Auglýsing

Ein­stök staða - Gagn­sæi verði leið­ar­ljós



Þetta er lík­lega ein­stök staða hjá þjóð í heim­inum um þessar mund­ir, og fram­hald á for­dæma­lausum aðstæðum og aðgerðum sem hér hafa markað stöð­u efna­hags­mála frá því fjár­mála­kerfið hrundi í októ­ber 2008.

Til við­bótar við góða grein­ingu Ótt­ars, á þessum krefj­and­i að­stæð­um, má nefna atriði, er snerta sölu á hlutum í bönk­un­um, sem er afar ­mik­il­vægt. Það er að stjórn­völdum beri gæfa til þess að hafa hvert einasta skref sem tekið er í átt að sölu á eign­ar­hlutum í bönk­unum með gagn­sæi sem ­leið­ar­ljós. Allt verður að vera uppi á borðum um hvaða aðilar sýna áhuga á bönk­un­um, hvaða verð hafa verið nefnd og á hvaða for­send­um, og einnig hvaða ­per­sónur og leik­endur það eru sem eru að ræða um öll atriði sem snúa að þessum ­málum á hverjum tíma.



Ísland er agn­ar­smár mark­aður í alþjóð­legu sam­hengi, og því eðli­legt að end­ur­skipu­lagn­ing­ar­ferli eins og það sem nú er að fara af stað, verði eins opið og aðgengi­legt öllum og mögu­lega er hægt.

Þetta er ekki sagt til að þess að gera þessi mál tor­tryggi­leg, heldur miklu frekar til þess að minna á að þetta verður bara gert einu sinni og að trú­verð­ug­leik­inn skiptir sköp­um. Ekki þarf að fjöl­yrða um það, að traust til banka­kerf­is­ins á Íslandi er enn að byggj­ast upp. Eins og ­banka­kerfið er í dag er það nær alfarið byggt upp á inn­lánum almenn­ings og ­fyr­ir­tækja, og því eru almanna­hags­munir hvert sem litið er. 

Aðkoma sér­fræð­inga

Það er von­andi að stjórn­völd vandi sig, og legg­ist yfir öll þessi atriði sem þarf að skoða vel með fær­ustu sér­fræð­ingum sem völ er á. Frá hruni hefur það ­reynst stjórn­völdum vel að leita til sér­fræð­inga, bæði inn­lendra og erlendra. Þeir búa oft yfir þeirri þekk­ingu sem þarf til að koma málum í réttan far­veg, fremur en stjórn­mála­menn­irn­ir. En þeir verða að tryggja að almenn­ingur vit­i hvað er að verið að gera á hverjum tíma, og á hvaða for­sendum ákvarð­an­ir ­byggja. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None