Bréf til Kára Stefánssonar frá Ástþóri Magnússyni

800px-OB090126a-3017_Bessastadir.jpg
Auglýsing
Heill og sæll Kári,



Um leið og ég vil þakka þér það frá­bæra fram­tak að stofna til átaks og und­ir­skrift­ar­söfn­unar til við­reisnar heil­brigð­is­kerf­is­ins, langar mig að vekja athygli þína á ónýttri orku uppá millj­arða verð­mæti sem ég vil virkja á Bessa­stöð­um.



Frá árinu 1996 hafa heyrst þær raddir á fjög­urra ára fresti í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga að þjóðin hafi lítið að gera við glugga­skraut á Bessa­stöðum og best sé að leggja niður for­seta­emb­ætt­ið.



Ég sé hins­vegar gríð­ar­leg sókn­ar­tæki­færi fyrir Íslenska þjóð í for­seta­emb­ætt­inu eins og ég fjall­aði um í bók­inni Virkjum Bessa­staði sem dreift var á öll heim­ili lands­ins árið 1996.



Ég hef nú í tvo ára­tugi reynt að vekja þjóð­ina til vit­undar um að for­seti Íslands gæti beitt sér fyrir því að á Íslandi rísi heimsmið­stöð lýð­ræð­is­þró­un­ar, frið­ar­mála og stjórn­stöð alþjóð­legrar frið­ar­gæslu.



Höf­uð­stöðvar Sam­ein­uðu Þjóð­anna til Íslands



Auk­inn þrýst­ingur er á flutn­ing höf­uð­stöðva S.Þ. frá Banda­ríkj­unum til hlut­laus­ari lands. Nýlega hætti rúss­nesk sendi­nefnd við þátt­töku í alþjóð­legri ráð­stefnu þing­manna hjá S.Þ. í New York eftir deilur um banda­ríska vega­bréfs­á­ritun til for­seta efri­deildar Rúss­neska þings­ins.



Ísland er í lyk­il­stöðu til að hýsa stofn­anir S.Þ. eins og ég hef kynnt í for­seta­fram­boð­inu Virkjum Bessa­staði. Hug­myndin hefur fengið víð­tækan stuðn­ing erlend­is, m.a. frá fyrrum for­seta Costa Rica Oscar Arias Sanches hand­hafa frið­ar­verð­launa Nóbels, Johan Galtung höf­undi hand­bóka S.Þ. í frið­ar­samn­ingum og Dr. Dietrich Fischer fyrrum ráð­gjafa S.Þ. í afvopn­un­ar­mál­um.



Meira en 21000 manns starfa í höf­uð­stöðvum S.Þ. í New York, tengdum stofn­unum og banda­rískum fyr­ir­tækjum sem veita sam­tök­unum þjón­ustu.



Efna­hags­leg áhrif af star­femi S.Þ. í New York síð­ast­liðið ár voru um 600 millj­arðar króna frá rekstri sam­tak­anna og við­haldi bygg­inga. Myndi sam­svara um þriðj­ungs aukn­ingu á vergri lands­fram­leiðslu Íslands!



Það var ekki að ástæðu­lausu að leið­toga­fund­ur­inn var hald­inn í Höfða. Fund­ur­inn gegndi mik­il­vægu hlut­verki í þróun afvopn­un­ar­mála og friðar síð­ast­liðna ára­tugi.



Reykja­vík er stað­sett mitt á milli Moskvu og Was­hington. Á Íslandi mæt­ast jarð­skorpuflekar aust­urs og vest­urs. Alþingi er elsta starf­andi þjóð­þing heims.



Ísland er í dag eina lýð­veldi heims sem aldrei hefur haft eigin her, sem aldrei hefur tekið þátt í vopna­iðn­aði af nokkru tagi og þar sem friður hefur ríkt í nær þús­und ár.



Þetta veitir okkur Íslend­ingum algera sér­stöðu til að hýsa Sam­ein­uðu Þjóð­irnar sem hlut­lausan vett­vang á tafl­borði heims­mál­anna.



Við sem Íslend­ingar eigum að vera stoltir af ein­stakri arf­leifð okkar sem þjóð frið­ar. Virkjum Bessa­staði og stuðlum að því að starf­semi Sam­ein­uðu Þjóð­anna flytj­ist til Íslands.



Löngu er orðið tíma­bært að for­seta­emb­ættið leggji sitt á vog­ar­skál­arnar og skili bein­hörðum tekjum í þjóð­ar­bú­ið. Ég hef ítrekað bent á þetta tæki­færi og nú þarf þjóðin að kveikja á per­unni.



Þær raddir sem hjala um að við höfum ekki efni á að veita 11% vergrar lands­fram­leiðslu til heil­brigð­is­mála munu hljóma hjá­kát­lega þegar Íslend­ingar hafa Virkjað Bessa­staði þannig að hund­ruð millj­arðar bæt­ast við þau 89% sem eftir verða til ráð­stöf­unar í lista­manna­laun og annan lúx­us.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None