Spunameistarar ríkisstjórnarinnar standa á gati nú sem fyrr

ríkisstjórn
Auglýsing
Rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar er í miklum mót­byr þessa dag­ana, einkum og sér í lagi þegar horft er til þess hvernig fylgið er að þró­ast. Píratar hafa miklu meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir sama­lagt, sam­kvæmt nýrri könnun MMR, eða 37,8 pró­sent. 



Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 19,5 pró­sent fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 10 pró­sent fylgi. Sam­an­lagt nær fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna ekki 30 pró­sent, sem verður að telj­ast með nokkrum ólík­ind­um, og til marks um hversu hratt fylg­is­fólki rík­is­stjórn­ar­innar fækk­ar.



En hvað veld­ur? Spuna­meist­arar rík­is­stjórn­ar­innar spyrja sig vafa­lítið að þessu. Að und­an­förnu hefur rík­is­stjórnin eytt skattfé í það að aug­lýsa sig í fjöl­miðl­um, af engri sér­stakri sýni­legri ástæðu, annarri en þeirri að vekja athygli á sér



Hag­töl­urnar eru flestar jákvæð­ar, og staðan í efna­hags­málum hefur haldið afram að batna hratt, alveg eins og hún gerði á kjör­tíma­bil­inu frá 2009 til 2013. Þá eins og nú, kvört­uðu margir fylg­is­menn rík­is­stjórnar sáran yfir því að fjöl­miðlar væru að flytja of nei­kvæðar fréttir af gangi mála, og stjórn­ar­and­stæð­ingar einnig.



Þegar rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur var við völd, þá minnk­aði fylgið jafnt og þétt fram að kosn­ing­um, en kvart­anir yfir því að ekki væri verið að fjalla nægi­lega mikið um jákvæðar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í fjöl­miðl­um, urðu sífellt hávær­ari. Í stórum dráttum er þetta svipað og er að ger­ast þessa dag­ana, nema hvað fylg­is­hrunið í könn­unum er dramat­ískara núna.



Vel má hugsa sér að þessi ein­kenni, sem sjást nú aug­ljós­lega hjá spuna­meist­urum rík­is­stjórn­ar­inn­ar, séu merki um að þeir skynji ekki nægi­lega vel um hvað fólk er að tala og hvaða mál það eru sem helst brenna á því. Sam­bandið við almenn­ing sé hrein­lega rofið

Píratar hafa boðað kerf­is­breyt­ing­ar, og að valdið verði fært til fólks­ins í auknu mæli, og eru að upp­skera ríku­lega. Ekki er ólík­legt að stjórn­ar­flokk­arnir muni koma fram með ein­hver rót­tæk útspil á næst­unni, til að auka fylg­ið. Hvort það mun gera það, er síðan önnur saga.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None