100 mannslíf

Auglýsing

Bílar drepa. Ég er ekki að tala um bílslys, þó vissu­lega valdi þau dauða fjölda Íslend­inga á ári hverju. Ég er að tala um svifrykið sem mynd­ast þegar þús­undir Íslend­inga setj­ast hver í sinn bíl­inn á háanna­tíma og keyra í takt til og frá vinnu eða skóla. Ég á við reyk­inn sem er svo vondur á bragðið að mörg okkar höldum niðri í okkur and­anum meðan beðið er við gang­braut.

Á Íslandi er talið að hund­rað manns hafi dáið ótíma­bært af völdum loft­meng­unar á síð­asta ári. Loft­meng­unar sem rekja má að lang­mestu leyti til bíla­um­ferð­ar. Þetta er mat Umhverf­is­stofn­unar Evr­ópu­sam­bands­ins, sem í nýrri skýrslu áætlar að nær hálf milljón Evr­ópu­búa hafi dáið af sömu sök­um. Hér á landi erum við að tala um tvær mann­eskjur í hverri ein­ustu viku.

Sögu­leg mis­tök

Útþensla byggðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í allar áttir hefur reynst okkur dýr­keypt mis­tök. Svæðið hefur hrein­lega verið skipu­lagt fyrir bíla­um­ferð. Höf­uð­borg­ar­svæðið er mjög strjál­býlt í alþjóð­legum sam­an­burði og áhrif þess á sam­göngur og sam­göngu­mynstur eru mik­il. Fjöldi bíla á Íslandi er orð­inn álíka mik­ill og fjöldi íbúa og hið dreifða skipu­lag veldur því að leiða­kerfi Strætó hentar ein­fald­lega ekki nógu mörg­um. Bíla­flot­inn veldur útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og mik­illi rýrnun loft­gæða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sér­stak­lega á háanna­tíma.

Auglýsing

Fólks­fjölgun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu ára­tugum krefst þess að við förum aðrar leiðir í skipu­lags- og sam­göngu­mál­um. Við þurfum að draga skyn­sam­leg mörk um útþenslu byggð­ar. Við þurfum að byggja þéttar og gera ráð fyrir fjöl­breytt­ari byggð. Í stað dýrra fram­kvæmda í nýjum umferð­ar­mann­virkjum þurfum við að auka frelsi þeirra sem vilja lifa bíl­lausum lífs­stíl. Það gerum við með því að leggja áherslu á umbætur í almenn­ings­sam­göngum og innviðum fyrir gang­andi og hjólandi veg­far­end­ur.

Við höfum allt að vinna. Með breyttum áherslum í skipu­lags­málum og fjár­fest­ingu í öfl­ugu kerfi almenn­ings­sam­gangna getum við breytt ferða­venjum okk­ar. Með breyttu ferða­mynstri drögum við úr þörf­inni á dýrum vega­fram­kvæmd­um. Með fækkun bíla á göt­unum minnkum við útblæstur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og stuðlum að hreinni, hag­kvæm­ari og örugg­ari borg. Við getum í alvöru bjargað manns­líf­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None