Bónusar til bankamanna úr rústunum

straumur1.jpg
Auglýsing

DV greindi frá því í gær að 20 til 30 starfs­menn ALMC, gamla ­Straum­s-­Burða­r­áss fjár­fest­inga­banka, hefðu fengið 3,3 millj­arða króna í bón­us­greiðslur í des­em­ber síð­ast­liðn­um. Á meðal þeirra var Óttar Páls­son hrl., lög­maður hjá Logos lög­manns­stofu, og Jakob Ásmunds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Straum­s. 

Greiðsl­urnar verða að telj­ast kostu­legur gjörn­ing­ur, í ljósi þess sem á undan er geng­ið, og einnig þess veru­leika sem íslenskt hag­kerfi hefur búið við, ekki síst vegna fífldirfsku og glóru­lausra ákvarð­ana banka­manna á árunum fyrir hrun. Straumur var einn þeirra banka sem féll vegna þess hve illa var fyrir honum kom­ið, í mars 2009. Snilli þess­ara sömu manna og fengu bón­us­greiðslur í des­em­ber síð­ast­liðnum var ekki nægi­lega mikil þá til þess að bjarga bank­an­um. 



Jakob segir í við­tali við Morg­un­blað­ið, vegna þess­ara bón­us­greiðslna, að þarna hafi ein­fald­lega verið unnið eftir sam­þykkt stjórnar ALMC, frá 2011. Greiðslur hafi verið í takt við erlendan veru­leika, en ekki inn­lend­an. 



Þetta er rétt hjá Jak­obi, en það breytir ekki því að engin þol­in­mæði er fyrir greiðslum sem þessum í íslensku sam­fé­lagi, eftir það sem á undan er geng­ið. Íslenskir banka­menn stóðu ekki undir trausti á sínum tíma, svo ekki sé nú fastar að orði kveð­ið, og almenn­ingur hefur þurft að búa við ömur­legan hafta­bú­skap árum saman vegna þeirra stöðu sem slitabú bank­anna settu hag­kerfið í eftir að banka­kerf­ið ­féll eins og spila­borg. 



Það sem kom í veg fyrir að hag­kerfið félli alveg til grunna var neyð­ar­réttur rík­is­ins, en ekk­ert dæmi er til í sög­unni, hvert sem litið er, fyrir við­líka aðstæðum og voru hér á landi haustið 2008, sem leiddu til beit­ingu neyð­ar­rétt­ar­ins. 



Þetta er hollt að rifja upp í þessu sam­hengi, þegar banka­fólk­ið ­fær millj­arða í fangið fyrir „vel unn­in“ störf í þágu erlendra kröfu­hafa í rústa­björg­un­inn­i. 



Óttar Páls­son, sem DV segir vera einn þeirra sem fékk bón­us­greiðslur í des­em­ber, ­skrif­aði grein í Morg­un­blaðið 21. ágúst 2009, þar sem hann baðst afsök­unar á því að áætl­anir sem þá voru uppi áform um að vinna eft­ir, væru ekki í nægi­legum takti við þær aðstæður sem Íslend­ingar byggju við sem þjóð. Var þar skír­skotað til hárra bón­us­greiðslna sem starfs­menn áttu að fá, ef áætl­anir myndu ganga eft­ir.



Það kann að vera að Óttar líti svo á, að aðstæður á Íslandi - mitt í næstum alls­herj­ar­þjóð­nýt­ingu á öllu fjár­mála­kerf­inu til að losa um fjár­magns­höft - séu mun betri til þess að greiða millj­arða­bónusa til banka­manna, en það er ekki víst að það séu honum allir sam­mála um það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None