Bjarni Sigmundur
Auglýsing

Því miður eru fjár­magns­höftin ekki farin enn­þá. Á næst­unni mun vænt­an­lega skýr­ast hver fram­vindan verð­ur, þegar kemur að losun hafta og útboða til að sprengja niður snjó­hengju aflandskróna, svo tekið sé til orða með mynd­lík­ing­um.

Óhætt er að segja að vel hafi tek­ist til, þegar kemur að því að leysa úr þeim mikla vanda sem snéri að slita­búum föllnu bank­anna. Ríkið á nú Lands­bank­ann og Íslands­banka, eins og kunn­ugt er, og er reiknað með því að rík­is­sjóður fái til sín um 500 millj­arða króna, að öllu með­töldu, þegar upp verður stað­ið. 



Von­andi munu stjórn­völd sjá til þess, að öll gögn er vörð­uðu málið - meðal ann­ars sér­fræði­á­lit frá póli­tískum ráð­gjöf­um, sér­fræð­ing­um, inn­lendum og erlend­um, og öðrum sem komu að mál­inu - verði gerð opin­ber þegar þessi mál hafa verið til lykta leidd. Það er full ástæða til, enda er vitað mál, að tek­ist var á um það bak við tjöld­in, hvernig ætti að leysa úr mál­um, og sitt sýnd­ist hverj­um. Þessar rök­ræð­ur, undir því álagi sem íslenska hag­kerfið var í, leiddu að lokum til far­sællar nið­ur­stöð­u. 

Niðurstöður kynntar í Þjóðmenningarhúsinu. Mynd: Birgir.



En til þess að það sé hægt að læra af mál­inu í heild sinni, og öll sjón­ar­mið liggi fyr­ir, þá verður að draga tjöldin frá og leggja öll spilin á borð­ið. Það er ekki síst mik­il­vægt fyrir kom­andi kyn­slóð­ir, alveg eins og reyndin var með vinnu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrun­ið, að fá upp­lýs­ing­arnar fram.



Kjarn­inn hefur ítrekað óskað eftir því að fá gögn afhent um mál­ið, meðal ann­ars minn­is­blöð og önnur gögn sem fram­kvæmda­hópur um afnám hafta hafði til hlið­sjónar við störf sín. Ástæðan er aug­ljós; málið varðar mikla almanna­hags­muni, og að okkar mati eiga gögn um málið erindi við almenn­ing.



Í nóv­em­ber 2014 var beiðni send til efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, um að fá gögn afhent, en því var neit­að, og helst horft til þess að um vinnu­gögn væru að ræða. Þetta á ekki við leng­ur, þar sem vinn­unni, sem snéri að stöð­ug­leika­skatti og stöð­ug­leika­fram­lagi - og heild­rænni útfærslu á þessum erf­iðu málum - er nú lok­ið. Beiðni hefur verið send til Seðla­banka Íslands, og til efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, um fá gögnin afhent, svo það sé hægt að glöggva sig á því hvernig kom­ist var að nið­ur­stöðu í mál­inu, sem allir hafa ekki verið sáttir við, t.d. ekki Indefence sam­tökin sem telja almenn­ing hafa verið hlunn­far­inn um mörg hund­ruð millj­arða í mál­in­u. 



Von­andi munu stjórn­völd og Seðla­banki Íslands taka vel í þessar beiðn­ir, og afhenda öll gögn er málin varða, sem hægt er að afhenda, lögum sam­kvæmt. Meg­in­reglan um að stjórn­sýslan eigi að vera gagnsæ og opin, verður þar von­andi leið­ar­ljós.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None