Með hjartað á réttum stað

guðrún hafsteinsdóttir
Auglýsing

Íslenskt atvinnu­líf er nú á nokkuð grænni grein, sé horft til hagtalna. Hag­vaxt­ar­horfur eru góð­ar, atvinnu­leysi í lægstu lægðum - verður 1 til 2 pró­sent í sumar ef spár ganga eftir - og skuldir eru að lækka almenn í hag­kerf­inu. Fjár­fest­ing er að vaxa sömu­leið­is. 

Heilt á lit­ið, er hag­kerfið nú að koma vel undan erf­iðum árum eftir hrun­ið. Neyð­ar­lögin voru grund­völlur þeirrar við­spyrnu og end­ur­reisnar sem átt hefur sér stað, og er mik­il­vægt að Íslend­ingar gleymi því ekki, að sú aðgerð var ein­stök á heims­vísu og kom í veg fyrir alls­herj­ar­hrun hag­kerf­is­ins, hvorki meira né minna. 



Það eru ákveðin for­rétt­indi, svo ekki sé fastar að orði kveð­ið, að geta beitt jafn rót­tækum lögum í krafti rík­is­valds - þvert gegn öllum kenn­ingum um frjálsan markað - þegar neyðin er mik­il. 



Á vel heppn­uðu Iðn­þingi var horft til fram­tíð­ar, og for­tíðar einnig. For­maður Sam­taka iðn­að­ar­ins, Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, hélt góða ræðu þar sem hann fjall­aði meðal ann­ars um þörf­ina sem íslenskt atvinnu­líf hefur fyrir útlend­inga, en að því er fram kom í máli hennar mun þurfa um tvö þús­und erlenda starfs­menn inn í hag­kerfið á hverju ári, næstu fimmtán ár. 



„Við höfum á und­an­förnum árum misst þús­undir Íslend­inga til ann­arra landa, fólk sem leitar að betri lífs­gæð­um, fólk sem vill auðga líf sitt og kynn­ast heim­inum bet­ur. Okkur finnst sjálf­sagt að við getum ferð­ast út um allan heim en setjum okkur síðan í stell­ingar gagn­vart fólki sem hingað vill koma. Ísland er orðið fjöl­menn­ing­ar­legt sam­fé­lag og við eigum að fagna því að hingað kemur fólk sem sér tæki­færi í því að setj­ast hér að, stunda hér vinnu og byggja sér hér heim­ili. Það er engin ógn í því heldur nauð­syn­legur fjöl­breyti­leiki fyrir fámenna og eins­leita þjóð,“ sagði Guð­rún meðal ann­ars.



Nú þegar mik­ill upp­gangur virð­ist í kort­unum í atvinnu­líf­inu, og mesta kúnstin í hag­stjórn­inni verður að koma í veg fyrir ofris - bæði krón­unnar og neysl­unnar - þá er gott að vita til þess að útlend­inga­andúð hefur ekki skotið rótum í íslensku atvinnu­lífi. Fólkið sem er í for­svari fyrir hags­muna­sam­tök í atvinnu­líf­inu hefur verið dug­legt að benda á mik­il­vægi erlendra starfs­manna, og vinnu­veit­endur lít­illa fyr­ir­tækja hafa sumir hverjir bein­línis fórnað nán­ast öllu sem þeir eiga til að hjálpa starfs­mönnum sínum að vera áfram í land­in­u. 



Passa þarf að ekki verði gengið of hratt um gleð­innar í efna­hags­líf­inu, en það er gott að heyra það frá atvinnu­rek­endum að hjartað er á réttum stað þegar kemur að mál­efnum útlend­inga. Enda hefur Ísland góða reynslu af útlend­ingum og er algjör­lega háð mik­il­vægu fram­lagi þeirra í hag­kerf­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None