Sigmundur
Auglýsing

Já-kór Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, skip­aður mörgum þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og ýmsum helstu stuðn­ings­mönnum hans, er þagn­að­ur. Það heyr­ist ekk­ert frá honum leng­ur, nema inn­an­tómt væl í ein­staka manni. Eftir að ráð­herra var afhjúp­aður í þætti Kast­ljóss í gær, og stað­inn að því að leyna til­vist félags­ins Wintris á Tortóla fyrir þingi og ­þjóð ­sem lýsti 500 millj­óna króna kröfum í bú hinna föllnu banka, þá virð­ist kór­inn ekk­ert vita hvað hann á að ger­a. 

For­sæt­is­ráð­herra, sem er upp við vegg og virð­ist ekk­ert geta gert annað en að hætta sem ráð­herra og boða til kosn­inga, er nú aðal­frétta­efni fjöl­margra alþjóð­legra fjöl­miðla. Hann er sýndur í mynd­bandi reyna að ljúga til um Wintris, í sam­tali við sænskan rann­sókn­ar­blaða­mann, og sést ­yf­ir­gefa við­talið þegar hann finnur að málið er óþægi­legt fyrir hann. 

Þetta er ekki góð land­kynn­ing, svo ekki sé fastar að orði kveð­ið. Raunar er hún algjör­lega skammar­leg, og aug­ljóst mál að rík­is­stjórnin hangir á blá­þræði vegna þess að málið eitt og sér, er að veikja orð­spor Íslands erlend­is. 

Auglýsing

Fleiri angar þessa máls eru nú orðnir skýr­ari.

Ömur­legt hefur verið að fylgj­ast með við­brögðum þing­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins í aðdrag­anda þess að Kast­ljós sýndi þátt­inn og upp­lýs­ing­arnar komu fram. Meira efni er á leið­inni, en frum­kvæð­is­vinna Reykja­vík Media, í sam­starfi við rann­sókn­ar­blaða­menn víða um heim, hefur gert mikið sam­fé­lags­legt gagn. 

Nokkrir þing­menn, Karl Garð­ars­son og Þor­steinn Sæmunds­son Fram­sókn­ar­flokki þar á með­al, not­uðu stór orð um fjöl­miðla­menn sem skrif­uðu með gagn­rýnum hætti um stöðu for­sæt­is­ráð­herra, þegar upp­lýs­ing­arnar komu fram um félagið sem hann hafði leynt þingi og þjóð. Þeir skrif­uðu einnig um RÚV og starfs­menn þess, með afar ómak­legum hætti, og það sama má segja um okkur á Kjarn­an­um. Sagan mun dæma þessi skrif illa, og fyrst og síð­ast vera þeim til minnk­unar sem þau létu frá sér. Eftir standa orðin tóm og dóna­skapur þess­ara reynslu­litlu þing­manna, sem virð­ast hafa sett sig strax í spuna­stell­ingar Já-kórs­ins, þegar upp­lýs­ing­arnar komu fram.

Það kann aldrei góðri lukku að stýra þegar Já-kór er far­inn að mynda innsta kjarna leið­toga, hvort sem er í fyr­ir­tækjum eða stjórn­mál­um. Það endar alltaf með ósköp­um, mis­jafn­lega alvar­leg­um. Í þetta skiptið er komin upp alvar­leg staða, og trún­að­ar­brest­ur­inn gagn­vart þjóð­inni er krist­al­tær. Já-kór­inn er þagn­aður og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er ekki með hreinan skjöld held­ur, með tengsl Ólafar Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra við aflandseyju­fé­lög á borð­in­u. 

Nýtt upp­haf virð­ist í sjón­máli á stjórn­mála­svið­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None