Ég skal heilsa þér – ef mér hentar

Auglýsing

Ég var stödd á afmæl­is­há­tíð sem haldin var í Þjóð­leik­hús­inu og eftir veru­lega góða sýn­ingu safn­að­ist fólkið saman og fékk sér kaffi og ‘­með­ðí’, og kannski eitt­hvað sterkara. Þar voru ýmsir á svæð­inu og meira að ­segja var danska drottn­ingin mætt en ég sá nú bara einu sinni rétt í hár­greiðsl­una henn­ar, því í kringum hana var svo þéttur veggur póli­tíkusa.

Á afmæl­is­há­tíð­inni hitti ég gamlan kenn­ara úr fram­halds­skóla, konu sem mér þótti afar almenni­leg á alla vegu og gaf mig á tal við hana. Eftir stutt spjall snýr sér ungur maður að okkur og stingur sér inn í sam­tal­ið. Kenn­ar­inn kynnir okk­ur, þó gerði ég mér vel grein fyrir hver þarna væri á ferð því þetta var upp­renn­andi tón­list­ar­maður með meiru, þekktur fyr­ir­ ein­lægan söng og til­gerð­ar­leysi, og í tölu­verðu upp­á­haldi hjá mér. Má segja að heldur hafi hýrnað yfir minni, enda mynd­ar­legur í þokka­bót. Spjallið hélt á­fram, og náði yfir heima og geima, menn vönd­uðu sig á öllum víg­stöðvum eða alla­vega ­mál­stöðv­um.

Nokkru síðar hitti ég þennan til­tekna tón­list­ar­mann aftur í af­mæli, sem var reyndar á öðrum mæli­kvarða en flest og nóg af vel þekkt­u­m Ís­lend­ingum á svæð­inu. Þó var ég þarna svona eig­in­lega sem +1. Í milli­tíð­inn­i hafði heldur betur borið til tíð­inda hjá tón­list­ar­mann­in­um, fer­ill­inn var á hraðri upp­leið og nafn hans á flestra vör­um. Ég heils­aði en mér til mik­ill­ar undr­unar var mér ekki heils­aði til baka, heldur horft í gegnum mig og snúið sér­ að næsta þekkta Íslend­ingi.

Auglýsing

Mín var nú frekar skúffuð að hafa ekki einu sinni feng­ið eitt lítið ‘hæ’, en hvað um það, kannski mundi hann ekk­ert eftir sam­tal­inu og ­senni­lega var hann búinn að eiga í hund­ruðum slíkra sam­tala í milli­tíð­inn­i. Svona er það bara, minnið er fall­valt eða var það frægð­in!

Ekki löngu síðar mæt­umst við á förnum vegi. Ég gerði ráð ­fyrir að hann vissi ekki hver ég væri svo ég var ekk­ert að „bögga“ hann. En viti menn, þá var heilsað og tekið í spað­ann.

Lengi vel eftir þetta var ég hugsi.

Gat ekki hrist af mér til­finn­ing­una um tví­skinn­ung og hvert ­skipti sem ég heyrði tón­list­ina hans, fannst mér ég heyra falsið óma í ein­læg­leik­an­um.

Spurn­ing­arnar sem eftir stóðu voru:

Þegar höf­undur hefur gefið verk út, tón­list, kvik­myndir eða vina­lega lof­grein, er verkið þá laust úr viðjum hans og við tekur nokk­urs kon­ar ­sjálf­stætt líf þess?

Eða verður verkið nokkurn tím­ann raun­veru­lega úr snert­ing­u við reynslu­heim höf­undar og sam­tím­ans sem það fæð­ist í?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None