Orkutengd nýsköpun

Auglýsing

Ísland hefur sér­stöðu í heim­inum vegna hinna miklu end­ur­nýj­an­legu orku­auð­linda sem það býr yfir. Orku­nýt­ing hér á landi hefur ein­kennst af því að kaup­endum raf­magns er til dæmis boðið að fram­leiða málma og melmi með hlut­falls­lega litlu kolefn­is­fótspori. Krafa sam­tím­ans er að auka enn við nýsköpun á þessu sviði.

Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands hefur um ára­bil verið vak­andi gagn­vart nýsköpun á sviði orku­notk­un­ar. Stór áfangi náð­ist þegar grein­ing okkar leiddi í ljós að orku­notkun við fisk­veiðar var svo mikil að þar verði til tonn af kolefn­is­fótspori við hvert tonn fisks sem landað er. Þetta hefur leitt til nýsköp­unar og einka­leyfa á sviði veiða þar sem ljós kemur í stað nets í tog­veiði­bún­aði. Nið­ur­stöður til­rauna sýna svart á hvítu að ljósveiðar geta sparað mikla orku, minnkað kolefn­is­fót­spor veru­lega og hlíft sjáv­ar­botn­in­um. Sam­vinna við Haf­rann­sókna­stofnun og fyr­ir­tæki í neta­gerð og útgerð hefur treyst þennan grunn. Fyr­ir­tækið Opti­tog ehf hefur verið stofnað um þessa nýsköp­un.

Annað svið sem Nýsköp­un­ar­mið­stöð hefur ein­beitt sér að er tengt stór­iðju málma hér á landi og þeirri hugsun að lág­marka fót­spor hvers kyns úrgangs­efna. Þetta hefur leitt til hug­mynda og fram­kvæmdar á til dæmis notkun afurða álver­anna í stein­lím, stein­ull og skyldar afurð­ir. Talað er um að loka fram­leiðslu­hringn­um; að full­nýta efnin sem afurð­ir. Sprota­fyr­ir­tækið Ger­os­ion ehf. varð til, sam­hliða SER (Start-Up Energy Reykja­vík) verk­efn­inu. Þar er fram­kvæmda­stjóri Sunna Wal­levík.

Auglýsing

Enn eitt atriði sem Nýsköp­un­ar­mið­stöð hefur veitt athygli er sú stað­reynd að við vinnslu jarð­hita verður til mik­ill glat­varmi. Þetta á sér eðl­is­fræði­legar ástæður því að nýtni við vinnslu raf­magns úr jarð­hita er oft lág og verður lægri eftir því sem hiti varma­lind­ar­innar er lægri.

Í verk­efn­inu Startup Energy var á síð­asta ári lögð fram hug­mynd sem unnið hefur verið að um fram­leiðslu raf­magns úr varma­lind við mjög lágan hita.

Þar er áskor­unin fólgin í orku­fram­leiðslu með lít­illi ein­ingu sem er um eitt kílówatt. Stofnað var til sprota­fyr­ir­tæk­is­ins XRG Power og er Mjöll Waldorff fram­kvæmda­stjóri. Meðal eig­enda er VHE í Hafn­ar­firði og svo auð­vitað SER hóp­ur­inn með Lands­virkjun og Arion banka í far­ar­broddi.

Þannig mætti enn lengi telja. Við hjá Nýsköp­un­ar­mið­stöð höfum notið þess að vinna að Start-up Energy verk­efn­unum og fundið sterk­lega hvað við eigum mikið erindi í þessa vinnu. Nú á þessum sum­ar­dögum höfum við verið að kynna verk­efnin á fundum með Lands­virkj­un, Íslenska jarð­varma­kla­s­anum og KPMG víða um land.

Við hlökkum til að taka á móti til­lögum um nýsköp­un­ar­verk­efni þegar starfið hefst aftur nú í haust.

Höf­undur er pró­fessor í eðl­is­fræði og for­stjóri Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands; hand­hafi Global, Alþjóð­legu orku­verð­laun­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None