Menntamálablús um eilífa klípu náms

Dóra Guðjónsdóttir
Auglýsing



Hvern­ig er hægt að ætl­ast til þess að landið dafni þegar aðstæð­ur­ ­náms­manna eru eins og þær eru í dag? Menntun eykur verð­mæta­sköp­un og skiptir öllu máli í þróun og nýsköpun sam­fé­lags­ins. ­Mennta­kerfið í dag hrekur áhuga­sama og lær­dóms­þyrsta ein­stak­linga úr námi heldur en að hjálpa þeim að kom­ast til­ ­mennta.

Þeg­ar þú hefur háskóla­nám, for­vit­in, eft­ir­vænt­ar­full og ákveð­in stendur þú frammi fyrir því að þú færð ekki eyri frá LÍN ­fyrr en þú ert búin að ná öllum prófum fyrstu annar – eft­ir hálft ár sem­sagt! Þú verður að byrja á því að gjöra svo vel og fara til bank­ans og biðja um brú­ar­lán, sem dugar þang­að til þú færð LÍN-lánið sem þú svo greiðir fyrra lánið með­. Já, ég er ekki að grín­ast. Þetta gerir þú auð­vit­að, byrj­ar að læra og gerir þitt allra besta. En úps, þú ert ekki í góð­u ­jafn­vægi því þú hefur erf­iðar aðstæður heima fyr­ir, og ­fellur á einu próf­inu. Ó nei, hvað nú? Það sem ger­ist er að þú færð ekki greitt fyrir þetta síð­asta fag frá LÍN – pen­ing­ana sem þú ert þegar búin að eyða í uppi­hald í gegn­um önn­ina. 

Auglýsing

Næst­u önn tek­urðu fleiri vaktir á viku (því að sjálf­sögðu varstu ­með vinnu fyrstu önn­ina enda ljósár í að náms­menn á Ísland­i ­geti verið í fullri vinnu sem náms­menn, en það er önnur saga) til að ná endum saman og reyna að greiða niður skað­ann frá­ ­fyrri önn. Þetta tekst að lokum eftir mikið streð, en þá ­nálg­ast prófin og þú hefur ekki getað sinnt nám­inu sem skyld­i ­vegna þess að þú þurftir að vinna svo mik­ið! Ó nei, hvað nú? Eftir svefn­lausar vikur tekst þér það að ná öllum próf­unum – sem er hreint út sagt ótrú­legt miðað við aðstæð­urn­ar. Til­ ham­ingju.

Árið líður og allt í einu ertu hálfnuð með grunn­nám­ið, vei! En svo kemur babb í bát­inn (eins og alltaf með LÍN, ef sjór­inn er ­speg­il­sléttur er það alltaf lognið fyrir storm­ið) – þetta ár ­sem þú þurftir að taka á þig fleiri vaktir til að greiða ­fyrir fall fyrstu ann­ar­innar vannstu OF mikið svo LÍN ákveður að þú skulir fá MINNA lán þetta árið, því þetta bless­aða lán er auð­vitað tekju­tengt. Það sem þú getur gert núna er að gráta í kodd­ann og biðja alla anda um að hjálpa þér en ekki g­leyma að þakka fyrir að þú sért ekki í námi erlendis – því þar er búið að saxa svo á náms­lánin und­an­farin ár að þar er ­nán­ast ómögu­legt að kom­ast af. Og auk þess eru tekju­mörkin ekki hærri þar en á Íslandi, svo til dæmis í Nor­egi get­urðu unn­ið um helm­ing af því sem íslenskir stúd­entar á Íslandi geta því að norska krónan – og sömu­leiðis kostn­aður við að lifa – er hærri. Þetta þrátt fyrir að náms­menn erlendis hafi engan til­ að halla sér að og þurfa að greiða mikið fyrir flug­miða heim ­reglu­lega.

En sei sei – þú heldur víta­hringnum áfram og vinnur meira til að ­gera upp fyrir tapað náms­lán vegna vinnu síð­asta árs og kemst í gegnum námið þótt ótrú­legt megi virð­ast. Bravó! En það er svo sann­ar­lega ekki LÍN að þakka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None