Græðgiskapítalisminn mættur til leiks á ný!

alingi-juli-2015_19437197066_o.jpg
Auglýsing

Fréttir af áformum end­ur­reistra þrota­búa gömlu bank­anna að loknum nauða­samn­ingum um að greiða fáeinum stjórn­endum eða yfir­mönnum hund­ruðir millj­óna króna í bónusa hafa eðli­lega valdið upp­námi. Fréttir af þessu tagi rífa ofan af lítt grónum sárum í íslensku sam­fé­lagi. 

Græðgin, hrok­inn og firr­ingin sem ein­kenndi lokaár nýfrjáls­hyggju-græðg­i­skap­ít­al­ism­ans á Íslandi árin fyrir Hrun er þjóð­inni enn í fersku minni. Þegar hin meinta snilld bón­us­greif­anna breytt­ist á einni nóttu í martröð allrar þjóð­ar­inn­ar, þegar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefndar Alþingis afhjúp­uðu gal­skap­inn, þegar spila­borgin hrundi, þá lærðum við von­andi lexíu sem dugar til lífs­tíð­ar.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sett starf­andi fjár­mála­fyr­ir­tækjum nokkuð stífar skorður hvað bón­us­greiðslur varðar og er það vel úr því ekki er vilji til og jafn­vel ekki heim­ilt vegna Evr­ópu­reglna að banna þær með öllu. Engin getur sam­kvæmt reglum FME fengið meira en sem nemur fjórð­ungi fastra launa í kaupauka árlega. En vand­inn í til­viki þrota­búa gömlu bank­anna, sem nú hafa vaknað til lífs­ins eftir að hafa hoppað á til­boð rík­is­stjórn­ar­innar um að greiða nokkur hund­ruð millj­örðum lægra stöðu­leika­fram­lag en þurfa að sæta greiðslu stöð­ug­leika­skatts, er að þau eru ekki fjár­mála­fyr­ir­tæki. Þau eru í reynd eign­ar­halds­fé­lög eða eigna­um­sýslu­fé­lög og að því leiti rétt eins og hver önnur fyr­ir­tæki í atvinnu­rekstri þó þau eigi sér þennan upp­runa.

Auglýsing

Er þá ekk­ert hægt að gera? Jú, sem betur fer. Við eigum ekki að horfa bar­áttu­laust   uppá þennan ósóma taka að grass­era hér á nýjan leik. Eða hvaðan í ósköp­unum kemur sú speki að það verði að verð­launa sér­stak­lega með bón­us­greiðslum það fólk sem mætir í vinn­una sína til að sýsla með pen­inga frekar en þá sem vinna við það baki brotnu, og oft við við­kvæmar og vanda­samar aðstæð­ur, að kenna börn­um, ann­ast um sjúka eða bein­línis bjarga manns­líf­um?  Hér koma a.m.k. þrjár upp­á­stung­ur:

1) Skoða mætti að fella eign­ar­halds- eða umsýslu­fé­lög sem spretta frá föllnum fjár­mála­fyr­ir­tækjum undir gild­is­svið lög­gjafar um fjár­mála­markað hvað þetta varð­ar. Bón­us­greiðslum væru þá settar sömu skorður þar og í bönkum og öðrum starf­andi fjár­mála­fyr­ir­tækjum og væri strax til veru­legra bóta.

2) Setja mætti almenna lög­gjöf um bón­us­greiðslur íslenskra lög­að­ila. Auð­velt er að færa fyrir því mjög gild vinnu­mark­aðs­leg rök að almennt skuli greiða starfs­mönnum fyrir vinnu sína með föst­um, umsömdum laun­um. Setja eigi geð­þótta­á­kvörð­unum um kaupauka eða bónusa skorður og vinna þannig gegn óhóf­legum launa­mun, ógagn­sæi um launa­á­kvarð­anir og ástæðu­lausri píramídamyndun innan fyr­ir­tækja. Það er með öllu óþarft og ástæðu­laust að blanda saman við þetta þraut­reyndu fyr­ir­komu­lagi afkasta­hvetj­andi kerfa í fram­leiðslu­starf­sem­i. 

3) Í öllu falli er í hendi lög­gjafans að setja til­raunum til að hefja græðg­i­svæð­ingu íslensks við­skipta­lífs að nýju með þessum nakta hætti, og þó að utan komi, skorður með því að inn­leiða harka­lega skatt­lagn­ingu á ofur­bónusa. Þannig mætti hugsa sér að fara í á bil­inu 70-90% tekju­skatts­hlut­fall á bón­us­greiðslur umfram reglur FME.

Eitt er verst og kemur ekki til greina, að gera ekki neitt.

Höf­undur er þing­maður VG og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None