Brjóta skal bein til mergjar

Ingimundur Bergmann, formaður félags kjúklingabænda, skrifar aðsenda grein um kjúklingabú og landbúnað.

Ingimundur Bergmann
Auglýsing

Vegna umræðu sem fram hefur farið á Kjarn­anum undir liðnum „skoð­un“ telur und­ir­rit­aður rétt að koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Íslenskir kjúklinga­bændur hafa náð þeim árangri í eldi fugla sinna að þeir eru í fremstu röð ásamt bændum á Nýja Sjá­landi. Gera má ráð fyrir að ýmsir þættir valdi þeim góða árangri og hafa eft­ir­far­andi atriði verið tínd til í því sam­bandi: Vönduð eld­is­hús, nákvæmni og natni í umönnun fugl­anna á eld­is­tíma, aðgangur að heitu vatni til upp­hit­un­ar, hreint og gott loft sem eld­is­húsin eru loft­ræst með, ásamt því að hita­stig á Íslandi er, þó stundum mætti það vera heit­ara, heppi­legt. Fleira mætti eflaust til telja.

Búin eru leyf­is­skyld frá Heil­brigð­is­eft­ir­liti og Mat­væla­stofnun og því er fylgt eftir með eft­ir­liti af hálfu beggja stofn­ana.

Auglýsing

Und­ir­rit­aður man satt að segja ekki með vissu hvenær inn­leitt var svo­kallað rekj­an­leika­kerfi sem lesa má á umbúðum á afurðum búanna, en hyggur að það muni geta verið a.m.k. fyrir 15 árum síð­an. Kerfið felur í sér að hægt er að rekja frá hvaða búi varan er komin og einnig í hvaða húsi fugl­inn var alinn upp í. Að auki eru ýmsar frek­ari upp­lýs­ingar byggðar inn í kerf­ið, þannig að til dæmis er hægt að sjá úr hvaða varp­hænsna­húsi eggið er komið sem ung­inn kom úr á sínum tíma o.s.frv.. 

Inn­flutt frjó­egg til við­halds útung­un­ar­stofni eru flutt inn undir opin­beru eft­ir­liti og síðan með­höndluð á ein­angr­un­ar­stöðv­um. 

Skimun fyrir Salmon­ellu og Kampýló­bakter er gerð á hverjum ein­asta eld­is­hóp á eld­is­tíma og síðan einnig í slát­ur­húsi. Ski­mað er fyrir Salmon­ellu almennt, en ekki ein­ungis aðeins fyrir tveimur af um 2200 teg­undum hennar eins og tíðkað er erlend­is  þar sem slík skimun fer fram sem þó er alls ekki algilt að sé gert (svo sem lesa má t.d. um í þing­skjali 1593 á bls 4) og einnig hér.

Ef Salmon­ella grein­ist í eld­is­hópi á Íslandi, þá er hópnum fargað og skiptir þá ekki máli hvaða gerð af óværunni fannst í hópn­um. Eins og gefur að skilja þá eru slíkar aðgerðir afar kostn­að­ar­samar fyrir bændur þegar upp koma, en á móti kemur að afleið­ingar smits í fólki lenda þá mun síður til með­höndl­unar í heil­brigð­is­kerf­inu. Bætur hafa bændur í slíkum til­fellum getað sótt til Bjarg­ráða­sjóðis hafi iðgjöld þeirra til sjóðs­ins náð að safn­ast nægj­an­lega upp til að dugi. Stjórn­völd munu hafa ákveðið að leggja sjóð­inn niður þannig að þetta  hald­reipi verður þar með skorið af. 

Vera kann að ein­hverjum finn­ist eld­is­hús fyrir kjúklinga ekki nógu virðu­legar bygg­ingar og séu skemm­ur. Til eru, eða voru a.m.k. dæmi þess erlend­is, að eldið sé stundað í bygg­ingum sem eru fleiri en ein hæð, jafn­vel margar hæðir og sjálf­sagt finnst ef til vill ein­hverjum að það sé meiri glæsi­bragur yfir því að stunda búskap­inn með þeim hætti. Slíkar skoð­anir og „smekk“ verður hver að hafa fyrir sig, en benda má á að ágæt­lega hefur gengið að not­ast við bygg­ingar af skemmu­gerð­inni bæði hér­lendis og erlend­is, hvort heldur er til eldis ali­fugla, ann­ars fén­aðar bænda  og/eða  til sölu dag­vöru svo og undir ýmsa aðra starf­semi.

Þá hefur verið bent á það á þessum vett­vangi að gott væri að búin væru öllum opin til að rölta um og skoða. Vegna þess er rétt að koma því á fram­færi, að vegna reglna sem um leyf­is­skyldan búrekstur gilda þá er það tak­mörk­unum háð hve langt er hægt að ganga í því efni. Að auki má einnig hafa í huga að býli bænda eru vinnu­staður þeirra og búaliðs og líkt og hjá flestum öðrum starfs­stéttum þá er þeim nauð­syn á eðli­legum vinnu­frið til að sinna störfum sín­um.  

Höf­undur er for­maður Félags kjúklinga­bænda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None