Örlög þín eru... IÐNNÁM!

Auglýsing

Ég er eins ungur og nokkur getur verið sem horfir samt sem áður aftur til grunn­skóla­ár­anna sinna með fjar­læg­um nostal­gíu glampa í aug­un­um. En þó það séu ekki nema rétt rúm 10 ár síðan ég útskrif­að­ist úr grunn­skóla, finnst mér samt eins og mennta­kerfið hafi verið ótrú­lega gam­al­dags þegar ég var að klifra í gegnum það. Þegar minn árgangur komst í ung­linga­deild (ég er alla­vega nógu ungur til að kalla það ekki gaggó) vorum við sorteruð í „hrað­ferð“ og „hæg­ferð“, eftir því hvernig okk­ur, 13 ára krökk­un­um, hafði gengið í bók­námi miss­erið á und­an. Tossa­bekkur og proffa­bekkur. Flott til að bæta stemm­ing­una. (Ég býst við að hug­takið ein­stak­lings­miðað nám hafi verið fundið upp ein­hvern tím­ann á síð­ustu 10 árum.)

Þremur árum seinna útskrif­að­ist maður úr grunn­skól­anum og þurfti að velja fram­halds­nám. Auð­vitað stóðu fjöl­margir skólar til boða, en sam­fé­lagið og við­horfs­straum­arnir ein­föld­uðu valið mjög mik­ið. Ef þú varst með mjög góða ein­kunn (bara ein­kunnir úr bók­náms­fögum töld­ust með), þá skráðir þú þig á nátt­úru­fræði­braut í ein­hverjum bók­náms­fram­halds­skóla og helg­aðir næstu 4 árum ævi þinnar í að reikna stærð­fræði. Því öll viljum við jú verða verk­fræð­ingar ekki satt? Ef þú varst með svona rétt yfir með­al­lagi ein­kunn­ir, þá fórst þú á mála- eða félags­fræði­braut í ein­hverjum bók­náms­fram­halds­skól­an­um. En ef svo hræði­lega vildi til að þú brill­eraðir ekki á hinum alræmdu sam­ræmdu prófum 10. bekkj­ar, þá neydd­ist þú til að fara í iðn­skól­ann! Ég, hinn klass­íski nörd, til­heyrði fyrsta hópn­um. Og skráði mig, eðli máls­ins sam­kvæmt, á nátt­úru­fræði­braut í bók­náms­skóla.

Spólum 10 ár fram í tím­ann. Ég er að paufast í að ná mér í mína 2. háskóla­gráðu. Bý á stúd­enta­görð­unum í íbúð sem er svo lítil að bað­her­bergið er 1/3 af íbúð­inni. Sumir hverjir sam­nem­endur mínir úr hæg­ferð­inni hins veg­ar, sem neydd­ust til að skrá sig í verk­nám, hafa núna starfað sem raf­virkjar, kokkar og píparar í nokkur ár og eru ekki bara búnir að kaupa sína fyrstu kjall­ara­í­búð sem virð­ast vera örlög alls ungs fólks að byrja búskap sinn í, heldur búnir að stækka við sig og fluttir inn í sína aðra íbúð.

Auglýsing

Afhverju í ósköp­unum sam­fé­lagið leit niður á iðn­nám þegar ég var að útskrif­ast úr grunn­skóla veit ég ekki, en ég get bara vonað að íslenskt sam­fé­lag hafi látið af þeirri vit­leysu á þessum rúmu 10 árum. Síðan hvenær var það eitt­hvað ómerki­legra að vera lag­hentur og list­rænn en að vera góður í stærð­fræði? Eina IKEA hús­gagnið sem ég hef skrúfað saman á ævinni lið­að­ist í sundur með skelfi­legum afleið­ingum fyrir geisla­diska­safnið mitt.

Getum við sem þjóð­fé­lag plís hætt að búa til ein­hverja fárán­lega hug­læga ­stétta­skipt­ing­u milli fólks og farið að meta hæfi­leika allra á jafn­ingja­grund­velli? Hvort sem það er hæfi­leik­inn að þekkja ráð­herra­skipan Nýsköp­un­ar­stjórn­ar­innar eða leggja pípur í húsin okk­ar. Þið megið giska hvort ég kann.

Höf­undur er stjórn­mála­fræð­ingur og sagn­fræði­nemi, vara­for­maður Ungra jafn­að­ar­manna og gefur kost á sér í 4.-6. sæti í for­vali Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None