Góðir hlutir þurfa ekki að gerast hægt!

páll
Auglýsing

Í vik­unni fór fram í þing­inu atkvæða­greiðsla um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu utan­rík­is­ráð­herra um full­gild­ingu samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og var hún sam­þykkt með öllum greiddum atkvæð­um. Ég lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu sem mið­aði að því að val­frjálsi við­auk­inn við samn­ing­inn sem Ísland und­ir­rit­aði á sama tíma og samn­ing­inn sjálfan fyrir rúmum 9 árum yrði einnig full­gilt­ur. 

Val­frjálsi við­auk­inn mælir fyrir um kæru­leið til eft­ir­lits­nefndar með samn­ingnum fyrir fatl­aða ein­stak­linga og hópa sem telja að íslensk stjórn­völd hafi ekki veitt þeim þann rétt sem þeim ber sam­kvæmt samn­ingnum og hafa árang­urs­laust nýtt þau úrræði sem þeir hafa sam­kvæmt íslenskum lögum og stjórn­kerfi til að ná rétti sín­um. Eft­ir­lits­nefndin getur óskað upp­lýs­inga frá ríkjum og beint til­mælum til þeirra. Með því að full­gilda val­frjálsa við­auk­ann verður virkara aðhald með ríkjum um að fram­fylgja samn­ingn­um vel verð­ur, réttar­ör­yggi fatl­aðs fólks meira og mann­rétt­indi þess betur var­in.  

Það er skemmst frá því að segja að þessi til­laga olli miklu upp­námi og töldu margir að ef ég héldi þess­ari til­lögu um full­gild­ingu við­aukans til streitu myndi það verða þess vald­andi að full­gild­ing samn­ings­ins sjálfs næð­ist ekki nú vik­unni. Eftir að hafa fengið það stað­fest af hlut­að­eig­andi yfir­völdum og ráðu­neyt­is­fólki að nauð­syn­leg vinna vegna við­aukans væri ekki lokið og því ekki hægt að full­gilda hann nú dró ég til­lögu mína til baka. Það byggð­ist á því að ég vildi alls ekki að þessi staða með við­aukann, sem hlut­að­eig­andi stjórn­völd bera alla ábyrgð á, yrði til að ekki næð­ist heldur að full­gilda samn­ing­inn sjálfan nú. 

Auglýsing

Ég lagði jafn­framt sem flutn­ings­maður fram aðra til­lögu, ásamt þing­mönnum úr öllum flokk­um, sem lýtur að því að Alþingi álykti að val­kvæði við­auk­inn við samn­ing­inn skuli full­giltur fyrir árs­lok 2017. Ég er þeg­ar öllur er á botn­inn hvolft sáttur við þessa nið­ur­stöðu og lít á þetta sem mik­inn áfanga­sigur í bar­áttu fatl­aðs fólks fyrir fullum rétt­indum sín­um. Samn­ingur um rétt­indi fatl­aðs fólks verður mjög mik­il­vægt tæki fyrir það til að tryggja og verja mann­rétt­indi sín. Og því miður er svo sann­ar­lega ekki van­þörf á því í okkar ríka land­i. 

Stjórn­völd verða nú að sýna, og ekki aðeins í orði heldur kröft­ug­lega í verki, að þau taki skyldur sínar sam­kvæmt samn­ingnum mjög alvar­lega og geri það sem gera þarf til að ákvæði samn­ings­ins hafi örugg­lega raun­veru­leg áhrif fyrir fólk af holdi og blóð­i ­styrki rétt­indi þess, lífs­gæði, tæki­færi og virð­ing­u. Það er auð­vitað mikið umhugs­un­ar­efni að það skuli hafa tekið íslenska ríkið næstum 10 ár að full­gilda þennan mik­il­væga mann­rétt­inda­samn­ing sem lang­flest ríki í heim­inum hafa þegar full­gilt og sum fyrir löngu síð­an. Og að sjálf­sögðu eru það von­brigði og mikið umhugs­un­ar­efni að íslensk stjórn­völd skuli ekki hafa gert það sem gera þarf til að unnt væri að full­gilda við­auk­ann nú um leið og samn­ing­inn þó að þau hafi haft til þess næstum 10 ár. 

En þannig er staðan og því verður að gera það besta úr henni sem mögu­legt er. Og batn­andi manni er best að lifa og það á við ríki líka og ég ætla að trúa því og treysta að íslenska ríkið ætli að bæta mjög frammi­stöðu sína í því að tryggja fötl­uðu fólki mann­rétt­indi til jafns við aðra. Full­gild­ing samn­ings­ins nú og mark­viss inn­leið­ing rétt­inda hans og ákvæða í lög, reglur og alla fram­kvæmd og full­gild­ing við­aukans á næsta ári eru mjög mik­il­vægir þættir og áfangar í því. Þegar þessum áföngum er lokið ætti ekki að vera neitt því til fyr­ir­stöðu að stíga loka­skrefið og festa samn­ing­inn end­an­lega í lög. 

Höf­undur er þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None