Ekki gera ekki neitt!

Karólína Helga Símonardóttir
Auglýsing

Um helg­ina fór ég ásamt fleiri full­trúum Bjartar fram­tíðar af stað til að safna und­ir­skriftum fyrir fram­boðið okkar sem og að kynna okkur fyrir gang­andi veg­far­end­um. Allir þeir sem ég spjall­aði voru mjög jákvæðir gagn­vart fram­boð­inu og voru til­búnir að styðja okkur til góðra verka á Alþingi. Ég átti þó tvö sam­töl sem mér finnst þess verðug að setj­ast hér niður og skrifa stuttan grein­ar­bút í von um að hann og boð­skap­ur­inn dreif­ist sem víð­ast. 

Hið fyrra var Æjjj, ég nenni ekki að kynna mér þetta. Það breyt­ist aldrei neitt. Ég nenni ekki að eyða tíma mínum í að reyna kynna mér fram­boðin og kjósa“. Ég svar­aði þessum ynd­is­lega og hrein­skilna ein­stak­lingi, með þeim orðum sem ég vil að þú kæri les­andi leggir vel á minn­ið. 

Í fyrsta lagi þá þurftu for­feður okkar að berj­ast fyrir lýð­ræði og það má aldrei smána með því að nýta ekki kosn­inga­rétt­inn. Í öðru lagi þá breyt­ist ekk­ert ef við stöndum ekki saman og trúum að breyt­ingar séu afleið­ing eigin ákvarð­ana. Stærstu stjórn­mála­flokkar Íslands, sem hafa verið oft­ast og lengst við líði fá betri kosn­ingu eftir því sem kosn­inga­þátt­taka minnkar því þeir flokkar eru með stóra „holl­ust­u“hópa sem vilja ekki breyt­ing­ar. Björt fram­tíð hefur ítrekað sýnt að hún er stjórn­tækt stjórn­mála­afl sem hefur staðið fyrir miklum og góðum breyt­ingum þar sem við fáum tæki­færi til að vera með. Það er eng­inn skyld­ugur til að kjósa Bjarta fram­tíð en ef þið viljið sann­ar­lega breyt­ing­ar, trúið þá á eigin „gut feel­ing“ og kjósið það sem hjartað býður ykk­ur. Kjósið breyt­ing­ar. 

Auglýsing

Annar veg­far­andi benti mér góð­fús­lega á að Björt fram­tíð væri algjör­lega frá­bært stjórn­mála­afl. Við værum búin að standa okkur frá­bær­lega á þingi og í þeim sveit­ar­fé­lögum sem við eru starf­andi í. Fólki gæti samt þótt erfitt að kjósa okkur því við værum ekki flokkur átaka, sem ein­kennir íslensk stjórn­mál. Þing­menn og sveita­stjórn­ar­fólk Bjartrar fram­tíðar hefur sýnt það skýrt síð­ustu ár að það þarf ekki átök til þess að standa fyrir breyt­ing­um. Það þarf bara vinnu­samt fólk með mik­inn metnað fyrir því að standa sig vel við að verja almanna­hags­muni. Björt fram­tíð ræður því ekki hvað það er sem fjöl­miðlar velja að fjalla um enda ekki mark­mið flokks­ins að vekja sem mesta athygli, sem því miður fæst oft­ast með upp­hróp­un­um. Mark­mið Bjartar fram­tíðar er Meiri fjöl­breyti­leiki, Minni sóun, Minna vesen og Meiri sátt. Björt fram­tíð er „.... lýð­ræð­is­afl sem vill breyta stjórn­málum á Íslandi þannig að þau ein­kenn­ist af meiri yfir­veg­un, meiri trú á lýð­ræð­is­legri og upp­lýstri ákvarð­ana­töku og meiri áherslu á ábyrgð og skyldu hvers og eins til þessa að leggja fram hug­myndir og lausnir“. 

Allir þeir sem eru óviss­ir, áhuga­samir eða bara for­vitn­ir, gefið ykkur tíma, kíkið inn á www.­bjort­framtid.issnapchattið bjort­framtiðtwitter eða face­book síðu flokks­ins. Lofið mér einu, ekki gera ekki neitt. 

Höf­undur situr í þriðja ­sæti á lista Bjartar fram­tíðar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None