Keisarinn í kassanum

Auglýsing

30. nóv­em­ber 2015

Hús­næði mynd­list­ar­deildar Lista­há­skóla Íslands: Almar, 23 ára, skríður inn í plast­kassa. Nak­inn.

Þannig lauk síð­asta ári. Íslenska þjóðin starði á nak­inn mann í kassa. Hún horfði á hann pissa og éta og og lesa og tal­aði svo um það við ömmu sína. Sumum okkar fannst lítil reisn yfir því þegar nakti mað­ur­inn í kass­anum skeit í dall í beinni útsend­ingu. Eða þegar hann fró­aði sér – þá var nokkrum okkar nóg boð­ið. En samt héldum við áfram að horfa. Við erum þol­in­móð þjóð.

Auglýsing

Gjörn­ing­ur­inn stóð yfir í viku. Engum varð meint af.

11. mars 2016

Ráð­herra­bú­stað­ur­inn við Tjarn­ar­götu: Inn í við­tal sænska blaða­manns­ins Sven Berg­mans við Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son gengur Jóhannes Kr. Krist­jáns­son og við þurfum virki­lega að bíta á jaxl­inn. Það er pín­legt að stara á Sig­mund sem starir sjálfur stjarfur inn í myrkrið sem hrekur hann loks á fæt­ur. Hann gengur út úr við­tal­inu.

Ég lái honum það ekki. Þetta hefur verið óbæri­lega óþægi­legt, á svona augna­bliki getur verið gott að ganga út undir bert loft, draga and­ann djúpt og vera frjáls undan sjálfum sér nokkur and­ar­tök.

En þegar Sig­mundur Davíð gekk út úr við­tal­inu við Sven Berg­man gekk hann ekki út undir him­in­inn. Hann gekk inn í kassa.

Keis­ar­inn í kass­anum

Kass­inn er ramm­gerð­ari og þrengri en sá sem Almar hírð­ist í undir vök­ulu auga þjóð­ar­inn­ar. Kass­inn er búinn til úr heift og beiskju og bund­inn saman með blogg­færsl­um. Þar inni er ekk­ert pláss fyrir stafla af pít­sa­kössum og piss­flösku. Þar er aðeins pláss fyrir einn mann og eina vind­myllu sem fáir hafa séð en stundum heyrum við lágt spuna­hljóðið í henni og dag­inn eftir birt­ist aðsend grein í Mogg­an­um.

Flest okkar dáð­ust að þraut­seigju Almars. Hann var heila viku í kass­anum og það var meira en nóg. Hvernig hefði þetta farið hefði hann verið þarna í tvær vik­ur? Eftir mánuð hefði hann örugg­lega misst vit­ið. Vika er langur tími í kassa.

Nú hefur Sig­mundur slegið met­ið. Gjörn­ing­ur­inn hefur staðið yfir í tæpa tíu mán­uði. Eðli­lega hefur hann ekki mætt mikið á þing lok­aður þarna inni en hann hefur skrifað þeim mun meira í blöð­in. Nú síð­ast grein í Morg­un­blaðið þar sem hann fer fram á afsök­un­ar­beiðni frá Rík­is­út­varp­inu vegna umfjöll­unar um aflands­fé­lag í eigu kon­unnar hans. Þar rifjar hann upp við­talið fræga sem hann segir nú að sé raunar upp­spuni frá rót­um. Það hafi verið sund­ur­klippt. Tækni­brellum og „svörtum filt­er“ hafi verið beitt til að blekkja þjóð­ina og í leið­inni umheim­inn. Nú veit ég ekki hvað svartur filter er, en mér finnst það merki­lega góð lýs­ing á því hvernig útsýnið úr kass­anum hans Sig­mundar hlýtur að vera.

Að skríða út

7. des­em­ber 2015 skreið Almar út úr kass­anum í beinni lýs­ingu Gumma Ben á Vísi.­is. Við fögn­uð­um. Okkur var öllum létt. Vissu­lega hafði verið spenn­andi að fylgj­ast með nakta mann­inum í kass­anum en þetta var orðið gott.

Sig­mundur Davíð húkir hins vegar enn í sínum kassa. Og hann ætlar ekki að koma út fyrr en frétta­stofa RÚV sendir honum afsök­un­ar­beiðni. Það mun auð­vitað aldrei ger­ast. Samt er ekki of seint fyrir Sig­mund að skríða út úr kass­an­um, ganga út undir beran himin og anda að sér fersku lofti. Gummi Ben mun reyndar ekki öskra sig hásan fyrir hönd íslensku þjóð­ar­inn­ar, en mörg okkar munu anda létt­ar.

Keis­ar­inn í kass­anum hefur verið nak­inn nógu lengi.

Þetta er orðið gott.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None