Katrín óskar eftir fundi - Hvers vegna var skýrslan ekki birt fyrir kosningar?

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna hefur óskað eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd um skýrsluna um aflandseignir Íslendinga.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, hefur óskað eftir fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis um skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga í skatta­skjól­um. Þetta upp­lýsir hún á Face­book síðu sinni. „Var að óska eftir fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd í kom­andi viku til að fá kynn­ingu og umræðu um skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga í skatta­skjól­um. Spurn­ingar hafa vaknað af hverju skýrslan var ekki birt fyrr en sam­kvæmt fréttum var henni skilað í októ­ber,“ segir Katrín. 

Hún segir fullt til­efni til að skoða hvort breyt­inga sé þörf á lög­gjöf sem varðar þessi mál. „Alþingi afgreiddi ýmsar breyt­ingar til bóta í haust sem ætlað var að bæta lög­gjöf hvað varðar skatt­svik og notkun skatta­skjóla. Skoða þarf hvort nægi­lega vel er búið að fram­kvæmd skatta­eft­ir­lits og skatt­rann­sókna. Og skoða þarf hvaða áhrif afnám hafta mun hafa á þessa hluti í fram­tíð­inni og hvort fjár­munir úr skatta­skjólum hafa verið að skila sér inn í landið að und­an­förnu í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans,“ segir Katrín, en í skýrsl­unni er því velt upp hvort eitt­hvað af þessum fjár­munum hafi skilað sér inn í landið í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands.

Eins og greint var frá í frétta­­skýr­ingu á vef Kjarn­ans í gærþá varð stökk­breyt­ing á flæði fjár til aflands- og lág­skatta­­svæða á fyrsta ára­tug þess­­arar ald­­ar, og fjöldi aflands­­fé­laga í eigu Íslend­inga fer­tug­fald­að­ist frá árinu 1999 og fram að hruni. Eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­­borg 46-­­föld­uð­ust á sama tíma­bili. Upp­­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­­svæðum frá árinu 1990 til 2015 nemur ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­­örðum króna, og tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 nemur lík­­­lega um 56 millj­­örðum króna. Á hverju ári gæti tapið vegna van­tal­inna skatta verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­­arðar króna.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None