Pólitík og skipan dómara við Landsrétt

Jón Steindór Valdimarsson segir að hin pólitísku skilaboð sem Viðreisn, og Vinstri græn, hafi sent í dómaramálinu hafi ekki getað dulist þingheimi né dómsmálaráðherra. Grípa yrði þetta einstæða tækifæri til að gæta jafnvægis kynja við þessa skipan.

Auglýsing

Kjarn­inn hefur fjallað um skipan dóm­ara í Lands­rétt og á margan hátt tekið for­ystu í þeirri umfjöll­un. Hlutur Við­reisnar við afgreiðslu máls­ins hefur verið reyf­aður og gagn­rýnd­ur. Það hefur einnig verið gert í öðrum fjöl­miðl­um, sam­fé­lags­miðlum og á vett­vangi stjórn­mál­anna.

Nýr dóm­stóll og jafn­rétti

Mik­il­vægt er að hafa í huga að um nýtt áfrýj­un­ar­dóm­stig er að ræða, nýjan dóm­stól sem byggður er frá grunni. Við dóm­stól­inn starfa 15 dóm­ar­ar. Hér er um ein­stæðan atburð að ræða og kjörið tæki­færi til þess að sinna kalli nútím­ans um sem jafn­ast hlut­fall karla og kvenna, úr hópi hæfra umsækj­enda, auk ann­arra góðra kosta sem prýða dóm­ara við nútíma­legan dóm­stól.

Við­reisn hefur sterkar skoð­anir á jafn­rétt­is­málum og beitir sér fyrir því að jafna hlut karla og kvenna í þjóð­fé­lag­inu. Það gildir líka um dóm­stóla.

Umfjöllun áður en umsókn­ar­frestur var úti

Þann 2. febr­úar 2017 var útbýtt þing­máli á Alþingi sem er ætlað að taka af öll tví­mæli um að nefnd sem fjallar um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara taki einnig til með­ferðar umsóknir um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt og veiti ráð­herra umsögn um umsækj­end­ur.

Málið var til fyrstu umræðu í þing­sal þann 7. febr­ú­ar. Við það tæki­færi sagði und­ir­rit­að­ur:

„Hér er verið að fjalla um hæf­is­reglur og skipan dóm­ara í hinn nýja Lands­rétt. Af því til­efni langar mig til að spyrja hæst­virtan dóms­mála­ráð­herra hvort ekki sé ástæða til að setja sér­stök ákvæði um skipan dóm­ara sem feli í sér að auk almennra hæf­is­skil­yrða skuli sér­stak­lega horft til sjón­ar­miða um jafn­rétti kynj­anna. Til­gang­ur­inn væri auð­vitað að vinna mark­visst að því að jafna kynja­hlut­föll meðal dóm­ara. Hér er nýr dóm­stóll í fæð­ingu, 15 dóm­arar sem koma þar til starfa. Manni sýn­ist að hér sé ein­stakt tæki­færi til að ná jöfn­uði þegar þessi nýi dóm­stóll verður settur á lagg­irn­ar.“

All­margir aðrir þing­menn tóku til máls og gerðu flestir jafn­rétt­is­sjón­ar­mið að umtals­efni. Má þar nefna Andrés Inga Jóns­son sem sagði m.a. við umræð­urn­ar:

„Hátt­virtum þing­manni er tíð­rætt um að hæfni eigi að ráða skipan mála og má alveg taka undir það. En ekki má loka aug­unum fyrir því að þessi hæfni er ekki hlut­laus gjöf nátt­úr­unn­ar. Eins og dæmið sem ég nefndi áðan um að hæsta­rétt­ar­dóm­arar hefðu ein­göngu kallað til karla sem vara­dóm­ara þennan vet­ur­inn. Þetta er reynsla sem telur inn í hæfni þegar kemur að skipan í dóm­ara­emb­ætti. Þetta við­heldur skekkju í kerf­inu ef ekk­ert er að gert.“

Auglýsing

Mál­inu var vísað til alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar til með­ferð­ar. Nefndin skil­aði tveimur álit­um. Nefnd­ar­á­lit meiri hluta alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar um málið frá því 23. febr­úar end­ur­speglar þessa miklu umræðu um kynja­sjón­ar­mið við skipan dóm­ara við Lands­rétt, en þar seg­ir m.a:

„Sam­kvæmt nýjum lögum um dóm­stóla, nr. 50/2016, er gert ráð fyrir að Lands­réttur taki til starfa 1. jan­úar 2018 en í rétt­inum skulu eiga sæti 15 dóm­ar­ar. Við með­ferð frum­varps­ins í nefnd­inni var rætt almennt um gagn­rýni á fyr­ir­komu­lag við skipun dóm­ara. Í því sam­hengi var m.a. rætt um mat dóm­nefndar á hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti, kynja­hlut­fall við dóm­stóla og hvernig sjón­ar­mið um jafn­rétti koma til skoð­unar við skipun dóm­ara. ... við ákvörðun ráð­herra um skipun dóm­ara og leggur meiri hlut­inn áherslu á að ráð­herra hafi að mark­miði í því sam­hengi að kynja­hlut­föll verði sem jöfn­ust í hópi skip­aðra dóm­ara“. 

Nefnd­ar­á­lit minni hlut­ans kveður enn fastar að orði um mik­il­vægi jafn­rétt­is­sjón­ar­miða:

„Minni hlut­inn telur að sam­hljómur hafi verið um mark­miðið að jafna hlut kynj­anna innan dóms­kerf­is­ins meðal nefnd­ar­manna, en er ósam­mála meiri hlut­anum um þær leiðir sem mætti beita til að ná því mark­miði. Minni hlut­inn telur að sú afstaða meiri hlut­ans að árétta að líta þurfi til jafn­rétt­islaga við skipun dóm­ara í nefnd­ar­á­liti sé ekki nægj­an­leg. Minni hlut­inn telur að þó að eðli­legt hljóti að telj­ast að dóms­mála­ráð­herra starfi í sam­ræmi við jafn­rétt­islög sé full ástæðu til að hnykkja á þeirri afstöðu í laga­text­anum sjálf­um. Minni hlut­inn telur að nú sé sögu­legt tæki­færi til að ná jöfnu hlut­falli kynj­anna hjá dóm­urum á nýju dóm­stigi strax frá fyrsta degi og það tæki­færi er mik­il­vægt að verja með skýru ákvæði sem nær yfir þessa fyrstu skipan dóm­ara“. 

Önnur umræða um dóm­stóla­lögin hófst 24. febr­úar og var fram haldið 27. febr­ú­ar. Þá sagði Pawel Bar­toz­sek m.a:

„Við vinnu við frum­varpið kom fram sú skoðun að kynja­hlut­föll við nýjan dóm­stól ættu að vera frá upp­hafi sem jöfn­ust og end­ur­spegl­ast sú skoðun meðal ann­ars í áliti minni hluta og breyt­ing­ar­til­lög­unni sem álit­inu fylg­ir. Þing­flokkur Við­reisnar deilir þeirri sýn sem þar kemur fram“. 

Síðar þennan sama dag fór einnig fram þriðja umræða og frum­varpið varð að lögum eftir atkvæða­greiðslu.

Andrés Ingi Jóns­son gerði við það tæki­færi svo­fellda grein fyrir atkvæði sínu:

„Ég geri hér grein fyrir atkvæði mínu í máli um Lands­rétt, svo það sé á hreinu, og vil ítreka það sem áður hefur komið fram að ég lít svo á að við öll í þessum sal, líka þið, hv. þing­menn, sem ekki sam­þykktuð breyt­ing­ar­til­lögu minni hluta alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar, séum sam­mála um að Lands­réttur eigi að end­ur­spegla sam­fé­lag­ið, hann eigi að vera jafnt skip­aður körlum og kon­um. Ef það ferli sem nú fer í gang innan ráðu­neytis dóms­mála skilar ekki þeirri nið­ur­stöðu er okkur að mæta“. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

Síðar hefur komið í ljós að þessi atkvæða­skýr­ing virð­ist hafa misst þýð­ingu sína og þunga.

Póli­tísk skila­boð

Hin póli­tísku skila­boð frá Við­reisn, og að því er virt­ist Vinstri græn­um, voru afdrátt­ar­laus og skýr og gátu hvorki dulist þing­heimi né ráð­herra dóms­mála. Krafan gat ekki verið skýr­ari. Grípa yrði þetta ein­stæða tæki­færi til að gæta jafn­vægis kynja við þessa skip­an. 

Umsókn­ar­fresti um hin nýju dóm­ara­emb­ætti lauk 28. febr­úar og þann 2. mars var listi umsækj­enda gerður opin­ber, nokkrum dögum eftir að umræð­unni lauk á Alþingi.

Dóm­nefndin skil­aði svo sínu mati til dóms­mála­ráð­herra 19. maí og var það birt á vef ráðu­neyt­is­ins þann 22. maí. Þá varð ljóst að nefndin mat nákvæm­lega 15 ein­stak­linga, 10 karla og 5 kon­ur, hæf­asta til þess að taka sæti í dómn­um. Þá þegar varð ljóst að póli­tískar óskir a.m.k. tveggja flokka um jafn­vægi milli kynja yrðu ekki upp­fylltar skv. þessum lista. Þetta var öllum ljóst.

Þing­flokkur Við­reisnar ítrek­aði sem fyrr þá skoðun sína að gæta yrði jafn­vægis milli kynja við hinn nýja dóm­stól, hlut­fallið 10 karlar og 5 konur væri ekki ásætt­an­legt og myndi flokk­ur­inn ekki standa að sam­þykkt list­ans með þessu kynja­hlut­falli. Þeirri skoðun var komið skýrt á fram­færi við dóms­mála­ráð­herra. Þeim skila­boðum fylgdi alls ekk­ert ann­að. Hvorki um hvaða ein­stak­lingar yrðu fyrir val­inu né nákvæmar óskir um fjölda karla og kvenna. Ein­ungis að list­inn með núver­andi kynja­hlut­föllum yrði ekki sam­þykkt­ur.

Önnur afskipti hafa þing­menn Við­reisnar ekki haft af skipan dóm­ara við Lands­rétt og myndi aldrei detta í hug að gera. Að sjálfu leiðir að það er dóms­mála­ráð­herra einn, að feng­inni umsögn dóm­nefnd­ar­inn­ar, sem leggur til­lögu sína fyrir Alþingi og ber ábyrgð á henni. List­inn sem ráð­herra lagði fyrir Alþingi upp­fyllti að fullu áherslu Við­reisnar um við­un­andi hlut­fall beggja kynja úr hópi hæfra ein­stak­linga við dóm­stól­inn.

Við loka­af­greiðslu til­lagna dóms­mála­ráð­herra um skipun dóm­ara við Lands­rétt sagði und­ir­rit­að­ur m.a:

„Það er hvorki vanda­laust né hafið yfir gagn­rýni og skoð­ana­skipti hvernig ákveðið er að velja og skipa dóm­ara við hinn nýja Lands­rétt. Það end­ur­spegl­ast vel í umræðum sem hafa orðið í þing­sal í dag og einnig þegar fjallað var um frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um dóm­stóla fyrir nokkrum vikum ... Nú hefur það gerst að dóm­nefndin skil­aði lista með 15 umsækj­end­um, tíu körlum og fimm kon­um, en dóms­mála­ráð­herra nýtt sér heim­ild í lögum til að leggja fram eigin lista með ell­efu þeirra sem dóm­nefndin lagði til en að auki nöfn fjög­urra sem dóm­nefndin hafði metið hæfa en ekki sett í hóp þeirra 15 sem dóm­nefndin lagði til. Við þessa breyt­ingu verða átta karlar og sjö konur á lista dóm­ara­efna. Það er mikið fagn­að­ar­efni og hefur mikla þýð­ingu fyrir hinn nýja dóm­stól og störf hans. Það stemmir mjög vel við mín sjón­ar­mið í jafn­rétt­is­málum og ég veit að svo er einnig um mjög marga aðra hv. þing­menn“.

Stóðum fast á okkar

Við­reisn hefur staðið við sína póli­tísku sann­fær­ingu í þessu máli frá upp­hafi til enda. Sú sann­fær­ing snýst um jafna stöðu kynj­anna en ekki ein­stak­linga. Allir þing­menn Við­reisnar eru og voru ein­huga í þessu máli, sem er mik­il­vægur áfangi í að jafna stöðu karla og kvenna í íslensku sam­fé­lagi.

Höf­undur er þing­maður Við­reisn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar