Kraftaverk eru ekki kraftaverk – Argentína eitt. Ísland eitt.

Dagur Hjartarson rithöfundur og skáld skrifar um leik Íslands gegn Argentínu og lífið.

Auglýsing

Sig­ur­þráin er ekki til­finn­ing, hún er lífs­stíl.

Eitt­hvað þessu líkt hlýtur Heimir Hall­gríms­son að hafa skrifað í bók­ina sína á hlið­ar­lín­unni í Moskvu þegar Alfreð Finn­boga­son fram­kall­aði augna­blik úr draum­um. Alfreð orð­aði það þannig sjálf­ur: augna­blik úr draum­um. Þetta var lítil bók sem Heimir krot­aði í, en mig grunar að samt rúmi hún sann­leik­ann á bak við krafta­verk sem er ekki krafta­verk.

Auglýsing
*

Spurn­ing:

Hvað eiga Birkir Már Sæv­ars­son og Lionel Messi sam­eig­in­legt?

Báðir hafa þeir knatt­spyrnu að auka­starfi. Þeir gera eitt­hvað annað með.

Birkir pakkar salti.

Messi gerir grín að nátt­úru­lög­málum – það er hans aðal­starf. Að gant­ast á mörkum hins mögu­lega. Nafn hans er skrifað í sögu­bæk­urn­ar, aftur og aft­ur, en það er líka skrifað í litlu bók­ina hans Heimis Hall­gríms­son­ar. Og í lín­unni fyrir neðan nafnið sem minnir okkur á end­ur­komu frels­ar­ans, þar stend­ur: Krafta­verk eru ekki krafta­verk.

*

Víti.

Hannes Þór Hall­dórs­son leik­stýrði nýlega aug­lýs­ingu þar sem hljóðin úr tón­verki dag­anna mynda ein­hvers konar heróp. Nú stendur hann and­spænis Messi og leik­stýrir augna­bliki úr draum­um.

Lífið er ein­hvern veg­inn.

Á sumrin rignir og rign­ir.

Á heims­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu ver Hannes Þór Hall­dórs­son víta­spyrnu frá Lionel Messi.

Ell­efu karl­menn, full­komnir eitt and­ar­tak, syngja um smá­blómið eilífa og tveimur klukku­tímum seinna eru allir búnir að gleyma hvort það dó eða hló.

Ein­hvern veg­inn svo miklu lík­legra að það hafi allan tím­ann hleg­ið.

*

Og þarna efst í stúkunni sat hann, Mara­dona, með hendur guð­anna kross­lagðar utan um von­brigði heillar þjóðar – litli dreng­ur­inn sem var svo fullur af lífi að hann féll á lyfja­prófi. Svo fullur af lyfjum að hann féll á lífs­ins prófi.

Sjálfur Mara­dona.

Lífið er ein­hvern veg­inn, og það er ein­hvern veg­inn svona. Stundum eru menn ekki menn heldur eld­ing­ar. Stundum líður tím­inn ótrú­lega hægt. Rign­ingin fyllir upp í heim­inn. Ég sit fyrir framan fjöru­tíu tommu sjón­varp. Dóttir mín hjalar á tepp­inu. Hún skilur jafn­lítið í því sem var að ger­ast og ég. Stundum rignir og rign­ir. Kannski hættir aldrei að rigna. Kannski eru augna­blik úr draumum ein­fald­lega draum­ar. Kannski er Mara­dona bara áminn­ing um að krafta­verk eru ekki krafta­verk.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit