Ekki líva leikinn

Auglýsing

Í gamla daga höfðum við áhyggjur af því að dönsku­slettur riðu íslensk­unni að fullu. Þær áhyggjur eru sem betur fer fyrir bí en þegar krakkar eru farnir að leika sér á ensku höfum við áhyggjur að nýju. Krakk­arnir hætta ekki að spila, þeir “líva leik­inn”. Íslenskt barna­efni í sjón­varpi er nán­ast hætt að hafa hlut­verk og í stað­inn horfa krakk­arnir á YouTube mynd­bönd á ensku. Þegar við bæt­ist að við erum öll farin að tala við tækin á ensku þurfum við alveg örugg­lega að spyrna við fót­um.

Auglýsing

Nú þurfum við að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir staf­rænan dauða íslensk­unn­ar.

***

Úr takti við þennan dramat­íska og harm­þrungna inn­gang má fagna því að allir virð­ast gera sér grein fyrir vand­anum og ætla að takast á við hann. Með ógn­ar­sterkum stuðn­ingi rík­is­stjórn­ar­innar og sam­starfi atvinnu­lífs­ins, háskólaum­hverf­is­ins og marg­vís­legra rann­sókn­ar­stofn­ana hefur náðst breið sátt um að snúa þess­ari þróun við.

Ef ekki er haldið rétt á spilunum, getur íslenskan tapast í hinum stafræna heimi.

Við ætlum að tryggja að íslenskan standi jafn­fætis öðrum tungu­málum í tækni­heimi. Mark­mið okkar er að stuðla að aðgengi almenn­ings og atvinnu­lífs að nauð­syn­legri mál­tækni svo fram­tíðin hljómi vel á íslensku. Til þess að ná þessu fram var samin mikil skýrsla, verk­á­ætlun um mál­tækni fyrir íslensku á árunum 2018–2022, þar sem farið er yfir grund­vall­ar­at­riði þess hvernig við ætlum að styrkja staf­rænar stoðir íslensk­unn­ar.

Úr verkáætlun um máltækni, síða 29: Samhengi gagna og máltækniverkfæra.

Á grunni fyrr­nefndar verk­á­ætl­unar skrif­uðu nýlega Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og Stef­anía G. Hall­dórs­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður sjálfs­eign­ar­stofn­un­ar­innar Almannaróms, undir samn­ing um rekstur Almannaróms á mið­stöð um mál­tækni. Það hefur verið frá­bært að sjá hvernig hið opin­bera, með mennta­mála­ráðu­neytið í broddi fylk­ing­ar, atvinnu­líf­ið, með SA í for­grunni, og háskól­arnir hafa verið ein­huga um að þetta mál sé lyk­il­at­riði fyrir okkur sem þjóð að vinna að.



Nú þarf að skipu­leggja inn­viði verk­efn­is­ins, hefja starf mið­stöðvar um mál­tækni, kynna mál­tækni fyrir fyr­ir­tækjum og stofn­unum og síð­ast en ekki síst koma á sam­starfi við erlend fyr­ir­tæki sem þróa mál­tækni­lausn­ir. Þar eru öll stóru tækni­fyr­ir­tækin mik­il­vægir sam­herj­ar. Google er með Assistant, Amazon með Alexa, Sam­sung með Bix­by, Apple með Siri, Microsoft með Cort­ana og Translator og til við­bótar ber­ast fréttir af því að Face­book sé að und­ir­búa mál­tækni­lausn­ina Aloha.

Við höfum unnið sigra í þessum efnum en meira þarf til. Þegar Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands heim­sótti Microsoft nýlega var til­kynnt að íslenska verði eitt af rúm­lega 60 tungu­málum sem gervi­greind­ar­þýð­ing­ar­vélin Microsoft Translator mun bjóða upp á. Þetta er stór áfangi og alls ekki sjálf­sagð­ur. Með hlið­sjón af þeim veru­leika að íslenska er langt því frá eitt af 60 stærstu tungu­málum ver­aldar er ljóst að það þarf tals­vert átak og sam­eig­in­legan slag­kraft til að tryggja að íslenskan okkar sé eitt þeirra tungu­mála sem tekið er til greina í svona tóli. Translator er einn fyrsti sig­ur­inn en fleiri slíkum þarf að ná svo vel sé.

***

Und­ir­stöður íslensku tækni­ald­ar­innar hafa verið treystar og það eru spenn­andi en krefj­andi íslensku­tímar framund­an. Hið opin­bera hefur tryggt fjár­mögnun verk­á­ætl­unar um mál­tækni. Fram­boð á námi í mál­tækni hefur verið tryggt með sam­starfs­samn­ingi Háskóla Íslands og Háskól­ans í Reykja­vík um meist­ara­nám í mál­tækni. Atvinnu­lífið þar að hefja smíði eigin mál­tækni­lausna og öll þurfum við að tryggja að við náum athygli stóru tækni­fyr­ir­tækj­anna úti í heimi. Þetta tryggir að á end­anum þurfi íslenskan ekki að líva leik­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar