Ég á´etta – ég má´etta

Sverrir Mar Albertsson segir að hægt sé að rjúfa skarð í kunningja- og frændsemissamfélagið í viðskiptalífinu og koma í veg fyrir að „pappírstígrisdýrin leiki sér með fjármuni okkar í skjóli frænda, vina og skólafélaga í stjórnum fyrirtækjanna.“

Auglýsing

Haft var eftir framá­manni í við­skipta­líf­inu í góð­ær­inu fyrir banka­hrun – er hann gekk á skítugum skóm um eigur eins af stóru hluta­fé­lögum lands­ins – að hann ætti þetta og þess vegna mætti hann haga sér eins og hann vildi.

Þetta var og er kannski enn, hugs­un­ar­hátt­ur­inn á þeim nýríku athafna­mönnum sem fara með him­in­skautum í við­skipta­líf­inu – að þeir eigi fyr­ir­tæk­in.  Fátt er jafn fjarri sanni. Senni­lega er auður þeirra nýríku af svip­uðum toga og auður athafna­mann­anna sem settu gull­duft á ser­íósið sitt og skruppu á þyrlum í lax­veiði – papp­írs­gróði af enda­lausum vafn­ings­fléttum með hluta­bréf og skulda­bréf – engum til góða öðrum en þeim sjálf­um.

Í dag eiga líf­eyr­is­sjóðir launa­fólks um 40% hluta­fjár skráðra hluta­fé­laga á mark­aði. Þeir sem fara með stjórn­ina í fyr­ir­tækj­unum eiga yfir­leitt lítið sem ekk­ert í þessum fyr­ir­tækjum og stjórn­ar­menn eru oft full­trúar ein­hverra sem eiga lít­inn hlut en hafa mikil áhrif.

Auglýsing

Ef litið er á flóru stjórn­ar­manna og stjórn­enda – er það ekki ýkja fjöl­mennur hóp­ur. Þetta fólk situr svo í stjórnum fyr­ir­tækja hjá hvert öðru – gapir hvert upp í annað um snilli­gáfu sína og hæfi­leika og ákveður launa­auka og ofur­laun á víxl.

Það er kom­inn tími til að breyta þessu!

Viljum nýja siði

Fólkið sem stofn­aði verka­lýðs­fé­lögin fyrir röskum 100 árum átti ekk­ert. Það er fólkið sem var nýkomið úr vist­ar­bandi og ánauð – bjó í hreysum og kotum og börnin féllu úr hor og eymd.  Af­kom­endur þessa fólks eiga bróð­ur­part­inn af sparifé þjóð­ar­innar í dag – um 4.000 millj­arða og eru smátt og smátt að kaupa upp fyr­ir­tækin á verð­bréfa­þingi.

Full­trúar verka­lýðs­fé­lag­anna í stjórnum líf­eyr­is­sjóða ættu að hafa skýra mynd af þeirri stjórn­un­ar­menn­ingu sem félags­menn verka­lýðs­fé­lag­anna – eig­endur líf­eyr­is­sjóð­anna – aðhyll­ast.

Í þeirri menn­ingu eru ekki ofur­laun og ekki kaupaukar til topp­anna.  

Með nýjum herrum koma nýir siðir og launa­fólkið í land­inu eru „nýju herr­arn­ir“ í eig­enda­hópi stóru fyr­ir­tækj­anna.  Við viljum nýja siði. Það er full­trúa okkar í stjórnum líf­eyr­is­sjóða að fylgja þeim vilja eft­ir.

Á fundi nýverið sagði ég „við eigum þetta – við eigum bara eftir að taka þetta“ og var þá að tala um eign­ar­hald á stóru hluta­fé­lög­unum og okkur sem launa­fólk og greið­endur í líf­eyr­is­sjóði.  Ein­hverjir hafa túlkað þetta sem vilja minn til að verka­lýðs­fé­lögin seilist til stjórn­un­ar­starfa í hluta­fé­lögum og fari að haga rekstri þeirra að eigin duttl­ung­um. Það er ekki rétt.

Það er hægur leikur hjá stjórnum líf­eyr­is­sjóða að styðja ein­stak­linga til stjórn­ar­setu í til­teknum fyr­ir­tækj­um. Við þurfum aðeins að bera saman áherslur okkar og þeirra sem til greina koma og velja þá sem hafa sama gild­is­mat og áherslur og veita þeim stuðn­ing okk­ar. Hvort við­kom­andi er félags­maður í verka­lýðs­fé­lagi eða ekki – skiptir ekki höf­uð­máli.

Með þessu getum við rofið skarð í kunn­ingja- og frænd­sem­is­sam­fé­lagið sem virð­ist alráð­andi í við­skipta­líf­inu og komið í veg fyrir að papp­írstígris­dýrin séu að leika með fjár­muni okkar í skjóli frænda, vina og skóla­fé­laga í stjórnum fyr­ir­tækj­anna.

Höf­undur er fram­kvæmda­stjóri AFLs starfs­greina­fé­lag og annar fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta ASÍ. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar