Lífsgæðin og krónurnar

Sara Dögg Svanhildardóttir segir í aðsendri grein að standa eigi við það sem sagt er og framkvæma í samræmi við það. Réttindi séu ekki tryggð með yfirlýsingum og orðaflaumi heldur verði aðgerðir að fylgja.

Auglýsing

Sam­eig­in­legur rekstur ferða­þjón­ustu fatl­aðra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er nú í end­ur­skoð­un, ef frá er talin ferða­þjón­ustan í Kópa­vogi, sem rekur sjálfur sína þjón­ustu. Sveit­ar­fé­lögum ber lögum sam­kvæmt að inna þessa þjón­ustu af hendi og þau leggja eðli­lega mikla áherslu á að haga henni með sem hag­kvæmustum hætti, þótt öryggi not­enda hljóti ávallt að vera í fyr­ir­rúmi.

Þegar leit­ast er við að hafa ferða­þjón­ustu sem hag­kvæm­asta fyrir sveit­ar­fé­lagið skipta margir þættir máli, t.d. fjöldi þeirra ein­stak­linga sem nýta sér þjón­ust­una, hvers eðlis fötlun þeirra er, t.d. hvort þeir nota hjóla­stól eða ekki, fjöldi ferða og hvaða far­ar­tæki verður fyrir val­inu. Það er eðli­legt að allir þessir þættir séu skoð­að­ir, þegar reiknað er út hver fjár­hags­leg nið­ur­staðan verður fyrir sveit­ar­fé­lag­ið. Hver ferð kostar sitt.

Það blasir við að því fleiri sem geta nýtt hverja ferð, því hag­kvæm­ari verður nið­ur­staðan í excel­skjali sveit­ar­fé­lags­ins. Það hag­ræði rímar hins vegar alls ekki alltaf við hag þess fatl­aða ein­stak­lings, sem nýtir þjón­ust­una. Ef aðeins er litið á krónur og aura verður frelsið og sjálf­ræðið að víkja. Kerf­ið, sem lögum sam­kvæmt á að styðja við fatl­aðan ein­stak­ling, snýst þannig gegn honum í raun og vinnur gegn sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti hans. „Hag­kvæmn­in“ reikn­ast aðeins út frá pen­ing­um, ekki lífs­gæð­um.

Auglýsing

Í öllum þessum útreikn­ingum finn­ast hvergi til­lögur þar sem fyrst og fremst er lögð áhersla á að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu, að mæta rétt­indum þessa hóps eins og kostur er og auka lífs­gæði og sjálf­stæði hans. Hvergi sjást þess merki, þrátt fyrir að nú sé langt liðið á árið 2018, árið sem ný lög um félags­þjón­ustu tóku gildi, með ákvæði um ferða­þjón­ustu fatl­aðra. Árið þar sem allir hafa talað fyrir mik­il­vægi sjálf­stæðis fatl­aðra ein­stak­linga, sjálf­ræði þeirra og mögu­leika á að hafa stjórn á eigin lífi eins og kostur er. Árið þar sem almennt er við­ur­kennt að kerfið á ekki að stýra ein­stak­lingn­um, heldur á hann að geta hagað lífi sínu eftir eigin þörfum og vilja, sem sjálf­stæður ein­stak­lingur þótt hann tlheyri þeim hópi sem við veljum að kalla fatlað fólk.

Hvernig er hægt að vera annað en hugsi? Hugsi og órótt yfir því valdi sem við hin „ófötl­uðu“ höfum yfir lífi þeirra sem þurfa að treysta á lög­boðna þjón­ust­u. 

Við eigum að standa við það sem við segjum og fram­kvæma í sam­ræmi við það. Rétt­indi eru ekki tryggð með yfir­lýs­ingum og orða­flaumi. Aðgerðir verða að fylgja. Þeir sem bera ábyrgð á að veita lög­bundna þjón­ustu eiga að gera það af auð­mýkt og í sam­ræmi við skýran vilja sam­fé­lags­ins.

Höf­undur er odd­viti og bæj­ar­full­trúi Garða­bæj­ar­list­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar