Eignarhald ríkisins skapar tækifæri

Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður VG fjallar um nýútkomna hvítbók um fjármálakerfið í aðsendri grein.

Auglýsing

Nýút­komin hvít­bók um fjár­mála­kerfið er góður grund­völlur fyrir umræð­una um fram­tíð fjár­mála­kerf­is­ins. Eftir henni hefur verið beð­ið, enda segir í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar að hún verði lögð fyrir Alþingi til umfjöll­unar áður en stefnu­mark­andi ákvarð­anir verði teknar um fjár­mála­kerf­ið.

Eign­ar­hald rík­is­ins á bönkum og fjár­mála­stofn­unum er stöðugt til umræðu, enda mik­il­vægt mál og ljóst að það skapar ýmis tæki­færi sem óvíst er að við fáum aft­ur. Stjórn­völd verða því að vanda vel til verka þegar kemur að fram­tíð­ar­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins. Þannig var um þetta fjallað í stjórn­ar­sátt­mál­an­um:

„Fjár­mála­kerfið á að vera traust og þjóna sam­fé­lag­inu á hag­kvæman og sann­gjarnan hátt. Eign­ar­hald rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum er það umfangs­mesta í Evr­ópu og vill rík­is­stjórnin leita leiða til að draga úr því. Ljóst er þó að rík­is­sjóður verður leið­andi fjár­festir í að minnsta kosti einni kerf­is­lega mik­il­vægri fjár­mála­stofn­un.“

Auglýsing

Í þess­ari umræðu er gríð­ar­lega mik­il­vægt að við höfum öll í huga að mik­ill meiri hluti þjóð­ar­innar er jákvæður í garð eign­ar­halds rík­is­ins á fjár­mála­stofn­unum og hefur sýnt sig vilja fyrst og fremst gagn­sæi þegar kemur að fjár­mála­kerf­inu og líka þegar kemur að eign­ar­haldi. Það þýðir ekki endi­lega að ríkið eigi að eiga aðra hverja fjár­mála­stofnun en við skulum hafa þetta í huga þegar við tökum ákvarð­anir og þegar við ræðum hvernig eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­stofn­unum eigi að vera fyrir kom­ið.

Margt gott kemur fram í hvít­bók­inni. Hvað eig­enda­stefnu rík­is­ins varð­ar, er hins vegar ljóst að þar er vísað til stefnu þeirrar rík­is­stjórnar sem sat í fyrra. Aug­ljós­lega þarf ný rík­is­stjórn að setja sér nýja eig­enda­stefnu.

Þá er eitt sem ég hefði viljað fá betri og ítar­legri umfjöllun um, en það er hug­myndin um sam­fé­lags­banka. Þar er um að ræða nýtt og spenn­andi fyr­ir­komu­lag, þó á gömlum grunni reist, sem hefur hlotið ágætis hljóm­grunn á meðal þjóð­ar­inn­ar. Ég hefði kosið opn­ari og jákvæð­ari umfjöllun í hvít­bók­inni um sam­fé­lags­banka, enda tel ég að við þurfum að vera óhrædd við að hugsa málin eftir nýjum leið­um, en ekki binda okkur á klafa við­tek­inna venja um rekstur fjár­mála­stofn­ana. Það hefur reynst okkur dýrt í for­tíð­inni.

Hvít­bókin verður rædd á Alþingi og þar gefst okkur þing­mönnum færi á að koma hug­myndum okkar á fram­færi. Eign­ar­hald rík­is­ins skapar ýmis tæki­færi, m.a. til að ná fram stærð­ar­hag­kvæmni, að fá arð í rík­is­sjóð og setja fjár­mála­regl­unni sið­legar regl­ur. Í þeirri umræðu eigum við að vera óhrædd við að ræða allar hug­mynd­ir.

Höf­undur er þing­maður Vinstri grænna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar