Er brennivínið besti kostur?

Úlfar Þormóðsson skrifar um áfengisfrumvarp.

Auglýsing

Tæp­lega tutt­ugu veit­inga­húsa­eig­endur hafa sent þremur ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar bréf þar sem þeir „skora á stjórn­völd að veita frum­varpi dóms­mála­ráð­herra um net­verslun með áfengi flýti­með­ferð vegna þeirra að­stæðn­a ­sem uppi eru í sam­fé­lag­in­u,“ segir í net-Frétta­blað­inu í vik­unni.

Það er ekki ætl­unin hér að ræða það sem veit­inga­menn­irnir færa fram sem rök. Hins vegar vil ég skýra frá sam­tali sem ég átti við mann sem nú er staddur á Gran Kanarí. Þar er útgöngu­mann og lög­regla á götum að reka þá inn sem slæp­ast út. Við­mæl­andi minn segir að her­lög­reglu­menn standi við útganga þeirra mat­sölu­búða sem opnar eru og kíki í inn­kaupa­poka. Sé of mikið vín í pok­unum (það fylgdi ekki sög­unn­i hversu ­mikið magn hver og einn mætti flytja með sér heim) er það gert upp­tækt.

Og af hverju gera þeir þetta, spurði ég.

Auglýsing
Þeir telja að heim­il­is­of­beldi vaxi í útgöngu­bann­inu og eru vissir um að áfeng­is­drykkja muni auka það og gera hrotta­fengn­ara, svar­aði Íslend­ing­ur­inn í sím­an­um.

Veit­inga­menn­irnir eru ekki vissir um að rík­is­stjórnin verði við óskum þeirra. Þess vegna bera þeir fram aðra ósk, örlítið vægri. Hún er til­ ­þrauta­vara, segja þeir og hljóðar svo með „rök­stuðn­ing­i“:

„Því er þess einnig óskað, nái frum­varpið ekki fram að ganga, að sett verði bráða­birgða­á­kvæði líkt og nágranna­lönd okkar og aðrir hafa þegar gert. Slíkt ákvæði myndi heim­ila vín­veit­inga­leyf­is­höfum heim­send­ingu á áfengi með mat á með­an COVID-19 far­ald­ur­inn gengur yfir.“ Hvorki fylgja þess­ari beiðni til­vitn­anir í slík bráða­birgða­á­kvæði né listi yfir lönd sem hafa látið þau taka gildi.

Pistl­inum lýkur svo af skrif­ar­ans hálfu með spurn­ingu:

Haldið þið, sem erindi veit­inga­mann­anna var stílað til, að vín­drykkja stuðli að sam­heldni fjöl­skyldna í ein­angrun og friði í heima­hús­um?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar