Fjárlögin: Styrkur til stóreignafólks

Stefán Ólafsson segir að með því að sleppa óþörfum styrkjum til stóreignafólks sem felast í nýjum fjárlögum hefði mátt taka fastar á raunverulegum vanda samfélagsins í kreppunni.

Auglýsing

Þess sér merki í fjár­lögum næsta árs að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer með hús­bónda­valdið í fjár­mála­ráðu­neyt­in­u. 

Í miðri djúpri kreppu þegar ríkið býr við tekju­fall og þörf er fyrir aukin útgjöld til að verj­ast því að kreppan dýpki enn frekar þá skjóta sjálf­græð­is­menn flokks­ins auknum styrkjum til stór­eigna­fólks inn í fjár­lög næsta árs. Þetta kemur í fram­haldi af því að rík­is­stjórnin hefur lækkað veiði­gjöldin útvegs­manna um millj­arða.

Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur lagt áherslu á að kaup­mætti almenn­ings, sér­stak­lega lægri og milli tekju­hópa, sé við­haldið til að styðja við inn­lenda eft­ir­spurn í gegnum krepp­una. Það er góð og vel reynd kreppu­hag­fræði í anda Key­nes. 

Auglýsing

Í þeim fræðum er hins vegar varað við því að ekk­ert gagn er af því að styðja sér­stak­lega við stór­eigna- og hátekju­fólk í krepp­um. Slíkt skili sér ekki í auk­inni inn­lendri eft­ir­spurn, heldur gæti t.d. leitt til meiri flutn­ings fjár úr landi – sem gæti svo lækkað gengið og rýrt kaup­mátt almenn­ings í fram­hald­in­u. 

Skatta­lækkun til lág­tekju­fólks og milli tekju­hópa er gott og gilt kreppu­úr­ræði, en ekki skatta­lækkun til hæstu tekju­hópa. 

En í Sjálf­stæð­is­flokknum virð­ist sjálf­græð­is­stefnan skyn­sem­inni sterk­ari – það er græðgin. Útvegs­menn eru ekki sér­stak­lega þurf­andi, né einka­fjár­festar og hátekju­fólk sem heldur öllu sínu. Hins vegar eru örorku­líf­eyr­is­þega þurf­andi, enda hafa þeir dreg­ist aft­urúr launa­þró­un­inni í sam­fé­lag­inu á síð­ustu árum. Þeim er í nýju fjár­lög­unum ætlað að drag­ast enn frekar aft­ur­úr. 

Þá eru atvinnu­lausir að bera þyngstu byrðar krepp­unn­ar. Þó lengt sé í tíma­bil­inu á tekju­tengdum bótum úr 3 mán­uðum í 6 (sem er mik­il­væg krafa verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar) þá býr sívax­andi hópur lang­tíma atvinnu­lausra við örbirgð­ar­bætur (289.500 kr. á mán. fyrir skatt; 235.100 eftir skatt og frá­drátt). Þessum hópi er ekki ætluð nein létt­ing lífs­bar­átt­unnar í fjár­lög­un­um. 

Þó rík­is­stjórnin hafi að sumu leyti tekið til­lit til áherslna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í kreppu­úr­ræðum sín­um, meðal ann­ars með áherslum á að vernda störf og við­halda kaup­mætti, þá fer hún einnig illa afvega með því að auka fríð­indi stór­eigna­fólks. 

Annað dæmi um þetta er inn­leið­ing skatta­af­sláttar vegna hluta­bréfa­kaupa, sem einkum nýt­ist þeim efna­meiri. Þá er líka horft fram­hjá því að almenn­ingur sem leidd­ist út í að setja tak­markað sparifé sitt í hluta­bréf á bólu­ár­unum tap­aði illa á því, bæði á kaupum í Decode og sér­stak­lega í bönk­unum þremur fyrir hrun.  



Skatta­lækkun til stór­eigna­fólks er meiri en til lág­tekju­fólks

Fjár­mála­ráð­herra upp­lýsir að um 14 millj­arðar muni renna til lækk­unar tekju­skatts, sem samið var um í Lífs­kjara­samn­ingn­um. En lækkun fjár­magnstekju­skatts nú mun nema 2,1 millj­arði.

Þegar þess er gætt að lækkun tekju­skatts rennur til stórs hluta hluta almenn­ings, mik­ils fjölda, en stór­eigna­fólkið sem er með hæstu fjár­magnstekj­urnar er til­tölu­lega fámennur hóp­ur, þá má ljóst vera að stór­eigna­fólk mun fá mun hærri krónu­tölu í þess­ari lækkun fjár­magnstekju­skatts­ins en lág­launa­fólkið sem mest fær úr lækkun tekju­skatts­ins.

Guð­spjall ríka fólks­ins er sem sagt enn í hávegum haft í Val­höll: „Þeir sem mest hafa skulu meira fá …“ (Matteus 25:29). Hinir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir taka svo und­ir.

Þetta guð­spjall, sem nýfrjáls­hyggju­menn hafa gert að sínu og við­hald­ið, er sem sagt ekki enn alveg dautt í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, þó sífellt fleiri séu nú orðið búnir að átta sig á miklum mein­semdum þess.

Með því að sleppa þessum óþörfu styrkjum til stór­eigna­fólks hefði mátt taka fastar á raun­veru­legum vanda sam­fé­lags­ins í krepp­unni.



Höf­undur er pró­fessor við HÍ og sér­fræð­ingur í hluta­starfi hjá Efl­ing­u-­stétt­ar­fé­lagi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar