Andstæðingar vonast eftir Hönnu Birnu en flokksmenn vilja Ólöfu

21092842118_40a36ac273_b.jpg
Auglýsing

Lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins fer fram 23-25. októ­ber næst­kom­andi. Áhuga­fólk um stjórn­mál mun fylgj­ast með honum af miklum áhuga, enda staða flokks­ins í skoð­ana­könn­unum um þessar mundir afar slök. Fylgið mælist ein­ungis 21,6 pró­sent, sem er með því lægsta sem það hefur mælst í sög­unni.

Mest spenna er fyrir kjöri vara­for­manns sem fram fer síð­degis sunnu­dag­inn 25. októ­ber, skömmu áður en fund­inum verður slit­ið.

Ljóst er að sitj­andi vara­for­mað­ur, Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, mun eiga á bratt­ann að sækja. Hún hefur gefið það út að hún sæk­ist eftir end­ur­kjöri „að óbreyttu“ en hefur ekki viljað skýra nánar hvað það þýð­ir. Nokkuð lík­legt þykir að Hanna Birna muni fá slaka kosn­ingu verði hún ein í fram­boði enda staða hennar innan flokks­ins, og utan hans, beðið mikla hnekki í kjöl­far leka­máls­ins. Und­an­farið hafa verið sagðar fréttir af því að hart sé lagt að Hönnu Birnu að hætta við fram­boðið innan flokks­ins.

Auglýsing

Póli­tískir and­stæð­ingar virð­ast hins vegar margir von­ast til að Hanna Birna verði áfram í for­ystu­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna þess að þeir telji að það vinni með þeim, og á móti Sjálf­stæð­is­flokkn­um.

Í bak­her­bergj­unum er mikið skrafað um hver geti boðið sig fram gegn Hönnu Birnu. Athygli hefur vakið að alþing­is­mað­ur­inn Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, ætlar sér að fara víða næstu daga og funda með flokks­mönn­um. Á tveggja vikna tíma­bili, frá 23. sept­em­ber til 7. októ­ber tekur hann þátt í alls átta fundum um allskyns mál­efni í sjö mis­mun­andi bæj­ar­fé­lög­um. Telja ýmsir að Guð­laugur Þór sé að kanna jarð­veg­inn fyrir vara­for­manns­fram­boði á þessum fund­um.

Ýmis­legt vinnur þó gegn Guð­laugi Þór á þeirri metn­að­ar­fullu veg­ferð. Í fyrsta lagi er áhrifa­mik­ill hópur innan flokks­ins, sem hverf­ist í kringum Davíð Odds­son , enn ekki búinn að gleyma því þegar Guð­laugur Þór vann próf­kjörs­slag við Björn Bjarna­son árið 2006. Fyrir það próf­kjör fékk hann alls 24,8 millj­ónir króna í styrki og fyr­ir­tæki tengd Baugs-klíkunni styrktu hann mest. Baug­ur, Fons og FL Group létu Guð­laugi Þór í té tvær millj­ónir hvert.

Þá situr aðkoma Guð­laugs Þórs að styrkja­mál­inu svo­kall­aða, sem kom upp tveimur vikum fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2009, einnig mjög í ýmsum flokks­mönn­um. Það mál snérist um að Guð­laugur Þór hafði í lok árs 2006 milli­göngu um 30 milljón króna styrk frá FL Group og 25 milljón króna styrk frá Lands­bank­anum til Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Flokk­ur­inn til­kynnti í kjöl­farið að hann ætl­aði sér að end­ur­greiða styrk­ina. Hann hefur hins vegar ekki viljað gefa upp hversu mikið flokk­ur­inn sé búinn að end­ur­greiða af þeim.

Að síð­ustu er Guð­laugur Þór karl, og nokkuð ein­sýnt þykir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfi sterka konu í for­ystu­sveit sinni eigi hann að hrista af sér þá ímynd að flokk­ur­inn sé fyrst og fremst flokkur fyrir íhaldsama ríka, gamla karla.

Því þykir mörgum Sjálf­stæð­is­mönnum inn­an­rík­is­ráð­herr­ann Ólöf Nor­dal vera betri kostur í vara­for­manns­emb­ætt­ið. Ólöf nýtur virð­ingar innan flokks­ins og á auk þess marga aðdá­endur utan hans. Skemmst er að minn­ast þess að Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagði i við­tali við Við­skipta­blaðið að honum þætti Ólöf „frá­bær ráð­herra“.

Síð­ustu daga hafa ýmsir skorað á Ólöfu að bjóða sig fram. Sjálf­stæð­is­menn á Sel­tjarn­ar­nesi riðu á vaðið í gær, tíu nú­ver­andi og fyrr­ver­andi for­yst­u­­menn inn­­an Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins víðs veg­ar af land­inu fylgdu í kjöl­farið og loks var skorað á hana á há­deg­is­fundi Sam­­taka eldri sjálf­­stæð­is­manna, sem fram fór í dag í höf­uð­stöðvum Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins í Val­höll.

Sjálf hefur Ólöf neitað að tjá sig um áskor­an­irnar á hana. Spá­menn bak­her­berg­is­ins eru þó á þeirri skoðun að ein­sýnt sé að Ólöf muni á end­anum taka slag­inn. Aðrir kostir í stöð­unni séu ein­fald­lega ekki í boði fyrir flokk­inn í þeirri sögu­legu lægð sem hann er í um þessar mund­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None