Bakherbergið: Hlíðarendi hefur þegar kostað borgina hálfan milljarð

hlidarendi.jpg
Auglýsing

Nýtt deiliskipu­lag á Hlíð­ar­enda­svæð­inu hefur valdið miklum deilum vegna þess að æstir aðdáa­endur Reykja­vík­ur­flug­vallar hafa lýst yfir and­stöðu við það. Þeir telja að skipu­lagið ógni fram­tíð­ar­til­veru flug­vall­ar­ins. Málið er raunar komið svo langt að 15 þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa lagt fram laga­frum­varp um að ríkið taki skipu­lags­vald á svæð­inu af Reykja­vík­ur­borg til að tryggja flug­völl­inn.

En Hlíð­ar­enda­svæðið hefur ekki bara verið umdeilt vegna nálægðar við flug­völl­inn. Árið 2005 var gert ansi nýstár­legt sam­komu­lag milli Reykja­vík­ur­borgar og eign­ar­halds­fé­lags­ins Vals­manna, sem var í eigu knatt­spyrnu­fé­lags­ins Vals og nokkur hund­ruð stuðn­ings­manna þess. Í sam­komu­lag­inu fólst að Vals­menn keyptu bygg­ing­ar­land á Hlíð­ar­enda á 872 millj­ónir króna, veð­setti það land til að fá lán hjá Frjálsa fjár­fest­inga­bank­anum og byggði sér glæsi­legt íþrótta­hús, knatt­spyrnu­völl og æfing­ar­svæði. Af verð­inu voru 500 millj­ónir króna stað­greidd­ir.

Hug­myndin var upp­haf­lega að byggja á bygg­ing­ar­land­inu, selja þær fast­eignir og fjár­magna upp­bygg­ing­una sem ráð­ist var í á aðstöðu Vals. Nýr knatt­spyrnu­völl­ur, íþrótta­hús og grasæf­ing­ar­svæði varð allt saman að veru­leika, en ekk­ert bólaði á fram­kvæmdum á bygg­ing­ar­land­inu.

Auglýsing

Ástæðan var enda­lausar tafir á útgáfu lóða­leigu­samn­inga. Vegna þeirra tafa sam­þykkt Reykja­vík­ur­borg að greiða Vals­mönnum ehf. taf­ar­bæt­ur. Árið 2010 var umfang taf­ar­bóta orðið sam­tals 470 millj­ónir króna, eða nán­ast sama upp­hæð og borgin hafði þá fengið í greiðslu fyrir HLíð­ar­enda­land­ið. Þá sagði borgin hingað og ekki lengra og tók ein­hliða ákvörðun um að borga ekki frek­ari bætur til Vals­manna.

Síðan heyrð­ist lítið af þessu öllu sam­an. Vorið 2013 var þrýst­ingur á frek­ari upp­bygg­ingu mið­svæðis í Reykja­vík nán­ast orð­inn óbæri­legur í ljósi þess að lang flestir íbúar höf­uð­borg­ar­innar vilja búa þar en fram­boðið var lítið sem ekk­ert. Á sama tíma náðu Vals­menn að end­ur­fjár­magna félagið og gátu byrjað að skipu­leggja upp­bygg­ingu Hlíð­ar­enda­svæð­is­ins.Í lið­inni viku var loks sam­þykkt nýtt deiliskipu­lag á Hlíð­ar­enda sem felur í sér upp­bygg­ingu 600 íbúða á svæð­inu. Enn mun bæt­ast við þegar glæsi­lega aðstöðu Vals­manna á svæð­inu því þeir byggja sér knatt­hús.

Allt virð­ist því ætla að enda vel. Vals­menn munu eign­ast aðstöðu til íþrótta­iðkunnar sem jafn­ast á við það besta í Evr­ópu og Reykja­vík­ur­borg mun eign­ast nýtt stórt íbúða­hverfi mið­svæðis í borg­inni. Það er ef skipu­lags­valdið verður ekki tekið af höf­uð­borg­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None