Bakherbergið: Innleiðing rafrænna skilríkja atvinnuskapandi

as.jpg
Auglýsing

Árni Sig­fús­son var bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ í tólf ár, frá árinu 2002 og fram að síð­ustu kosn­ing­um, þegar kjós­endur í sveit­ar­fé­lag­inu höfn­uðu hon­um. Ástæður þess að Árni átti ekki lengur upp á pall­borðið hjá Suð­ur­nesja­mönnum eru ugg­laust marg­ar, en sú sem var fyr­ir­ferð­ar­mest var afleit fjár­hags­staða sveit­ar­fé­lags­ins. Í tíð Árna fjór­föld­uð­ust nefni­lega skuldir A hluta bæj­ar­sjóðs og Reykja­nes­bær var rek­inn með halla af reglu­legri starf­semi öll árin á tíma­bil­inu 2002 til 2013, nema eitt, árið 2010. Til að mæta þess­ari stöðu voru stór lán tekin og flestar eignir seld­ar. Í kol­svartri úttekt sem gerð var á stöðu Reykja­nes­bæj­ar, og birt var í lok októ­ber, kom fram að sveit­ar­fé­lagið er nú það skuld­settasta á land­inu og skuldar alls um 40 millj­arða króna.

Árni er enn ungur mað­ur, ein­ungis 58 ára, og er því fjarri því að setj­ast í helgan stein þótt hann sé ekki lengur bæj­ar­stjóri. Hann þurfti enda ekki að bíða lengi eftir nýju starf­i.  Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skip­aði verk­efna­stjórn sem til að fylgja eftir útbreiðslu og notkun raf­rænna skil­rikja. Sú verk­efna­stjórn réð síðan Árna sem verk­efna­stjóra inn­leið­ingar raf­rænna skil­ríkja. Í nýjasta tölu­baði Tíund­ar, frétta­blaðs rík­is­skatt­stjóra, er grein eftir Árna þar sem hann fer yfir þá inn­leið­ingu sem framundan er næstu árin.

Á mynd sem fylgir grein­inni sést Árni með tveimur stjórn­ar­mönnum úr verk­efna­stjórn­inni og almanna­tengl­inum Gunn­ari Steini Páls­syni. Af mynd­inni að dæma er hann að starfa að inn­leið­ing­unni líka.

Auglýsing

Í bak­her­bergj­unum var það rifjað upp að Gunnar Steinn hefur unnið mikið fyrir Sig­urð Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann Kaup­þings og Hreiðar Má Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings-­sam­stæð­unn­ar, auk þeirra Ágústar og Lýðs Guð­munds­sona í Bakka­vör. Í skjali sem fannst við hús­leit árið 2009 merkt Gunn­ari Steini  var sett fram víð­tæk áætlun um áhrif á umræðu um helstu lyk­il­per­sónur í hrun­inu sem honum tengd­ust. Í skjal­inu kemur m.a. fram hvernig hægt vær að stofna blogg­her til að hafa áhrif á umræð­una.

Hlut­verk Gunnar Steins í inn­leið­ingu raf­rænna skil­ríkja er lík­ast til að reyna að móta umræð­una í kringum hana þannig að nýju skil­ríkj­unum verði tekið með sem jákvæðustum hætti. Ætli hann ræsi út blogg­her til að tryggja þá nið­ur­stöðu?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None