Bakherbergið: Jæja, allir í skotgrafirnar!

15422730189-cc70c8eb6f-k.jpg
Auglýsing

Jæja, það virð­ist vera komin PR-her­ferð í gang til að kæfa niður óánægju­radd­irnar sem munu að öllum lík­indum koma fram þegar nið­ur­stöð­urnar úr leið­rétt­ing­ar­að­gerð stjórn­valda liggja fyrir og verða kynntar í næstu viku. Sum verða ósátt, önnur ekki. Það er varla til­viljun að nú er búið að draga fram eitt­hvert mesta skot­graf­ar­hern­að­ar­mál seinni tíma í íslenskum stjórn­mál­um, Vatns­mýr­ar­flug­vall­ar­mál­ið. Lagt hefur verið fram frum­varp þar sem lagt er til að skipu­lags­vald yfir flug­vall­ar­svæð­inu verði fært til Alþingis frá Reykja­vík­ur­borg. Og bar­dag­inn er byrj­að­ur; lands­byggð­inni og höf­uð­borg­ar­svæð­inu er nú verið að koma fyrir í skot­gröf­unum svo stjórn­ar­flokk­arnir geti alltaf hóað í bak­land­ið, til að senda drullukökur úr einni skot­gröf­inni yfir í hina, ef þetta verður erfitt í leið­rétt­ing­ar­um­ræð­unni.

Í bak­her­berg­inu tóku margir sér­stak­lega eftir því hvað Páll Jóhann Páls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins,  var fljótur til. Hann sagði orð­rétt í pist­li: „Og á sama tíma og það er verið að tala um að eyði­leggja flug­völl, sumir tala reyndar um að færa flug­völl en ég veit ekki hvernig það er hægt, en þeir ætla að eyði­leggja flug­völl­inn og á sama tíma og sama svæði erum við að tala um, og allir sam­mála um það, að byggja upp hátækni­sjúkra­hús sem kostar 80 millj­arða. En við eigum ekki efni á því. En það er allt í lagi að eyði­leggja heilan flug­völl. Ég spyr, er fólk ekki alveg með á nót­un­um?“ Svo mörg voru þau orð. Skemmti­legt að hann skuli minn­ast á þessa 80 millj­arða, sem er um það bil sama upp­hæð og er nú verið að sækja í rík­is­sjóð til að leggja inn á verð­tryggðar skuldir fólks, aðal­lega í Reykja­vík. Skítt með lands­byggð­ina í þeim aðgerð­um, hún fær aðeins brot af því sem höfuðborg­ar­svæðið fær. En það er heyr­ist ekk­ert um það! Það er kannski af því að bak­landið á lands­byggð­inni er komið ofan í skot­graf­irnar og bíður skip­ana þar.

Leið­rétt: Í fyrstu útgáf­unni var tekið fram, að lagt hefði verið fram stjórn­ar­frum­varp um breyt­ingar á skipu­lags­valdi yfir flug­vall­ar­svæð­inu. Þetta er ekki rétt, heldur er um hefð­bundið frum­varp þing­manna að ræða.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None