Bakherbergið: Peningagjöf til útvaldra í skugga læknaverkfalls

9951399013-d1d9280f9b-o.jpg
Auglýsing

Jæja, á morgun rennur upp stóri dag­ur­inn, sem margir hafa beðið eft­ir. Á morgun fá nefni­lega þeir sem sóttu um að fá verð­tryggð hús­næð­is­lán sín "leið­rétt" vegna "for­sendu­brests­ins," svo­kall­aða, að vita hvað þeir fá mik­inn pen­ing úr rík­is­sjóði okkar allra að gjöf. Vænt­ingar almenn­ings eru temprað­ar, enda hefur loftið lekið úr vænt­inga­blöðr­unni hratt að und­an­förnu, og að sama skapi hefur fjarað undan Fram­sókn­ar­flokknum á sama tíma. Þá var rykið dustað af Reykja­vík­ur­flug­vall­ar­mál­inu, til að draga athygli almenn­ings frá skulda­nið­ur­fell­ing­unni, sem margir ótt­ast að verði hvorki fugl né fisk­ur.

Í bak­her­berg­inu er tíma­setn­ing skulda­nið­ur­fell­inga­að­gerða rík­is­stjórn­ar­innar höfð í flimmt­ing­um. Í bak­her­berg­inu finnst mönnum og konum athygl­is­vert og í senn grát­bros­legt að á sama tíma og læknar og tón­list­ar­kenn­arar eru í verk­falli, Land­spít­al­inn er nag­aður í sundur af maur­um, og átján ræst­inga­konum er sagt upp hjá stjórn­ar­ráð­inu, á að gefa sumum pen­ing úr sam­eig­in­legum sjóði okkar allra.

Ásmundur Einar Daða­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, for­sæt­is­ráð­herra, sagði í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag, að fólk mætti eiga von á einni til tveimur millj­ónum króna að jafn­aði í "skulda­leið­rétt­ing­unn­i." Það þýðir að sá sem fær 1,5 milljón og skuldar fimmtán millj­ón­ir, þarf að borga tæpum 6.000 krónum minna á mán­uði til nið­ur­greiðslu á lán­inu. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi. Það er ekki há upp­hæð ein og sér, en samt er um að ræða dýrasta kosn­inga­lof­orð Íslands­sög­unn­ar.

Auglýsing

Frá því að læknar hófu verk­falls­að­gerðir sínar hefur um 300 aðgerðum á Land­spít­al­anum verið frestað, ef verk­fall þeirra kemur hins vegar að fullu til fram­kvæmda er áætlað að fresta þurfi allt að 700 aðgerðum á spít­al­an­um. Í bak­her­berg­inu er velt vöngum yfir for­gangs­röðun stjórn­valda.

Það er kannski til marks um súran veru­leika á Íslandi þessi dægrin, að sama dag og stjórn­völd útdeila pen­ingum úr rík­is­sjóði til hluta almenn­ings, er boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli fyrir framan Alþing­is­hús­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None