Bakherbergið: Verður Breiðholtið hið nýja Brooklyn?

breidholt-yfirlitsmynd-1.jpg
Auglýsing

Það hefur vart farið fram­hjá neinum að fast­eigna- og leigu­verð hefur rokið upp í „gömlu-Reykja­vík“:  mið­borg­inni og hverf­unum í kringum hana á borð við Laug­ar­dal­inn, Vest­ur­bæ­inn og Hlíð­arn­ar. Þessi staða hefur gert það að verkum að ungt fólk, sér­stak­lega í skap­andi geirum sem gefa oft af sér lægri og stop­ulli tekj­ur, þarf að leita í önnur hverfi til að finna íbúðir af þeirri stærð og á því verði sem það ræður við.

Í Bak­her­berg­inu hefur verið mikið pælt í því hvaða hverfi það verður sem hip­ster­arnir og trend­sett­ar­arn­ir, móð­ins fólkið sem hefur ekki lengur efni á að búa í „gömlu-Reykja­vík“ muni renna á lykt­ina af og taka yfir. Ólík­legt verður að telj­ast að nýju úthverfin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, með sínum gráu og per­sónu­leika­lausu íbúða­klump­um, þjón­ustu- og menn­ing­ar­leysi og allt of mörgu hring­torgum muni höfða til þessa hóps.

Það vakti athygli þaul­set­inna Bak­her­berg­is-makk­ara þegar opin­berað var nýverið að sjóðir GAMMA, sem hefur fjár­fest í yfir 400 íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir meira en sjö millj­arða króna und­an­farin ár, hafi fjár­fest í yfir 40 íbúðum í Fella- og Selja­hverfi Breið­holts­ins. Í við­tali við Morg­un­blaðið sagði Sölvi Blön­dal, fyrrum rokk­stjarna sem nú stýrir fast­eigna­sjóðum GAMMA, að um álit­­leg fjöl­­skyld­u­væn hverfi sé að ræða, með hag­­kvæm­um íbúð­um, sem eft­ir­­spurn sé eft­ir á mark­aðn­um. Sölvi tel­ur Breið­holtið hafa verið veru­­lega und­ir­verð­lagt fram til þessa. „Hvort sem þú lít­ur til stað­setn­ing­­ar, upp­­­bygg­ing­ar eða við­halds íbúða, þá er margt mjög spenn­andi við Breið­holt­ið“. Það virð­ist því stein­liggja fyrir yfir­töku unga og skap­andi fólks­ins.

Auglýsing

Brooklyn hefur risið uppúr öskutóni þess að vera mjög óeftirsóknarverður staður til að búa á í að verða einn mest móðins staður jarðar. Brook­lyn hefur risið uppúr ösku­tóni þess að vera mjög óeft­ir­sókn­ar­verður staður til að búa á í að verða einn mest móð­ins staður jarð­ar­.

Í Bak­her­berg­inu er því nú ekki talað um annað en Breið­holt sem mögu­legt Brook­lyn Íslands. Á árum áður, sér­stak­lega frá 1970 til 1995, var Brook­lyn hverfið í New York nefni­lega heim­ili glæpa, fíkni­efna og félags­legar fram­færslu, stimpla sem Breið­holtið kann­ast allt of vel við að fá frá þeim sem þekkja illa til.

Á tæpum 20 árum hefur Brook­lyn umbreyst úr ömur­leg­heitapytti yfir í einn svalasta og mest móð­ins stað heims til að búa á og hip­sterar heims­ins flykkj­ast þangað til að opna fyr­ir­tækin sín, leggja tísku­strauma, skapa list­ina sína og láta almennt til sín taka. Lyk­ill­inn að því var sá að Man­hatt­an-eyjan í New York varð of dýr fyrir þennan hóp sem flykkt­ist þess í stað til Brook­lyn. Alveg eins og mið­borgin og nær­liggj­andi hverfi eru að verða fyrir sama hóp á Íslandi. Breyt­ingar eru því yfir­vof­andi og Breið­holtið gæti vel verið komið á sinn Brook­lyn stall á næstu árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None