Ekki í fyrsta sinn sem Eyþór Arnalds er í starfshóp sem greinir ríkisfyrirtæki

eythor.jpg
Auglýsing

Til­kynnt var um það form­lega í gær að Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hafi skipað starfs­hóp til að skoða og greina rekstur RÚV frá því að það var gert að opin­beru hluta­fé­lagi vorið 2007. Mark­miðið er að varpa ljósi á ástæður þess alvar­lega rekstr­ar­vanda sem RÚV glímir við. Yfir hóp­inn, sem á að skila af sér eftir rúman einn og hálfan mán­uði hið síð­asta, var settur Eyþór Arn­alds.

Eyþór er hvað þekkt­astur fyrir að hafa verið í tíunda ára­tugs hljóm­sveit­inni Tod­mobile. Hann starf­aði líka hjá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu OZ og hefur síð­ari ár ein­beitt sér að sveita­stjórn­ar­stjórn­málum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Árborg auk þess sem hann er fram­kvæmda­stjóri Strokks Energy.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Eyþór hefur verið settur yfir starfs­hóp á vegum hins opin­bera. Í nóv­em­ber 1997 skip­aði Hall­dór Blön­dal, þá ver­andi sam­göngu­ráð­herra, starfs­hóp til að skoða fram­tíð­ar­fjar­skipti. Eyþór, sem þá starf­aði hjá OZ, var á meðal þeirra sem skip­aðir voru í hóp­inn, sem fór meðal ann­ars yfir ýmsar áætl­an­ir, styrk­leika og veik­leka Lands­sím­ans (sem síðar var einka­væddur og heitir nú Sím­inn).

Auglýsing

Haustið 1998 rataði vinna starfs­hóps­ins í frétt­ir, en mán­uði áður hafði verið stofnað nýtt síma­fyr­ir­tæki, Íslands­sími. Að félag­inu stóðu meðal ann­ars Eyþór Arn­alds og félagar hans í OZ. Í frétt DV um mál­ið, sem birt­ist 21. sept­em­ber 1998, var rætt við Þór­ar­inn V. Þór­ar­ins­son, þáver­andi stjórn­ar­for­mann Lands­sím­ans, um það að aðilar sem sátu í starfs­hópnum um Lands­sím­ann hefðu nú stofnað síma­fyr­ir­tæki sem væri að fara í sam­keppni við hann. „Ég játa að það kom mér á óvart að þeir sömu menn sem voru trún­að­ar­menn stjórn­valda og gengu á eftir áætl­unum og sjón­ar­miðum Lands­sím­ans, styrk­leika og veik­leika allt fram í end­aðan mars­mánuð á þessu ári, skuli síðan í ágúst­mán­uði stofna síma­fyr­ir­tæki. Mér finnst þetta óheppi­leg nálægð,“ sagði Þór­ar­inn.

DV spurði Eyþór að því hvort sú stað­reynd að hann hafi átt sæti í starfs­hópnum kall­aði ekki á grun­semdir um að hann hefði í þessum starfs­hópi kom­ist að við­skipta­leynd­ar­málum og innri málum Lands­sím­ans og væri nú að not­færa sér þá vit­neskju í eigin þágu. Hann vís­aði því alfarið á bug og sagði að hann myndi ekki einu sinni starfa hjá nýja síma­fé­lag­inu. Það reynd­ist ekki rétt. Skömmu síðar var hann orð­inn for­stjóri Íslands­síma og gengdi því starfi í nokkur ár. Það félag end­aði að lokum inni í því sem nú heitir Voda­fone á Íslandi.

Í bak­her­berg­inu hafa menn þó ekki miklar áhyggjur af því að Eyþór hyggi á stofnun línu­legrar sjón­varps­stöðvar eða útvarps­stöðvar á næstu miss­erum sem ætlað sé að fara í sam­keppni við RÚV. Áhorfs- og hlust­un­ar­tölur gefa ekk­ert til­efni til að ætla að í því felist arð­bært við­skipta­tæki­færi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None