Gott lánshæfismat, betri kjör

Hákon Stefánsson
kronurVef.jpg
Auglýsing

Flest tökum við lán ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni enda auð­veldar lán­taka kaup á hlutum sem erfitt væri að stað­greiða. Hér­lendis er aðgengi að lánsfé gott og skiptir þá ekki máli hvort verið er að fjár­magna kaup á bíl, eld­húsinn­rétt­ingu, tölvu eða sófa svo fáein dæmi séu nefnd. Selj­endur sjá sér stundum hag í því að veita við­skipta­vinum sínum lán, til dæmis síma­fyr­ir­tæki sem veitir lán fyrir snjall­síma, en oft­ast er lán­veit­and­inn annar en selj­and­inn.

Lán­veit­endur taka ákvarð­anir um útlán sem byggja á mati á því hvort lán­taki sé lík­legur til að geta end­ur­greitt lán og nota þeir oft ólíka og mis­góða mæli­kvarða við slíkt láns­hæf­is­mat. Þeir sem stand­ast láns­hæf­is­mat eiga þess kost að fá lán á stöðl­uðum kjör­um. Að bjóða stöðluð kjör er ein­föld og þægi­leg aðferð fyrir lán­veit­endur sem er þó hvorki galla­laus né vönd­uð.  Stærsti gall­inn er aug­ljós­lega sá að eng­inn grein­ar­munur er gerður á lán­tökum sem full­nægja lág­marks­kröfum um láns­hæfi: Þeir bestu í þeim hópi fá sömu kjör og þeir lök­ustu. Þannig eru lána­kjör þeirra bestu ákvarðað á grund­velli láns­hæf­is­mats þeirra sem hafa lakasta láns­hæf­is­matið í hópi hæfra lán­taka. Í því felst að lána­kjör þeirra verða óhag­stæð­ari en til­efni er til.  Á þró­uðum lána­mörk­uð­um, til dæmis Banda­ríkj­unum og Bret­landi, end­ur­spegl­ast láns­hæf­is­mat lán­taka alla jafna í lána­kjörum – betra lánshæf­is­mat, hag­stæð­ari lána­kjör.

Íslenskir lán­veit­endur hafa tæki­færi til að bæta útlána­að­ferðir sínar og um leið styrkja sam­keppn­is­stöðu sína með því að horfa í auknu mæli til nið­ur­stöðu láns­hæf­is­mats við ákvörðun lána­kjara. Vísir að bætum lána­við­skiptum má sjá hjá ein­staka lán­veit­endum sem eru farnir að bjóða lána­kjör sem taka mið af því hversu gott láns­hæf­is­mat lán­tak­inn hef­ur. Sem dæmi um slíkt má nefna bíla­lán þar sem vaxta­kjör taka mið af láns­hæf­is­mati lán­tak­ans. Þá eru dæmi um að lán­veit­endur eigi frum­kvæði að því að bjóða lán­tökum afslátt á lán­töku­gjöld­um, hærri láns­fjár­hæðir eða draga úr kröfum um ábyrgðir eða trygg­ingar í takt við bætt láns­hæf­is­mat.

Auglýsing

Lán­tak­endur á Íslandi eiga að þekkja samn­ings­stöðu sína þegar kemur að lán­töku og gildir einu hvort um er að ræða lán­töku til lengri eða skemmri tíma. Þeir eiga að geta gengið á milli lán­veit­enda og freistað þess að fá kjör sem taka mið af því hversu góðir greið­endur þeir eru. Fyrsta skrefið í þá átt er að spyrja lán­veit­anda að því hvort lána­kjör end­ur­spegli nið­ur­stöðu láns­hæf­is­mats.

Höf­undur er stjórn­ar­for­maður Credit­in­fo.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None