Gott viðbragð stjórnvalda - Nú reynir á samstöðu og góðan vilja

10054123454_500ce92ce6_k-1.jpg
Auglýsing

Ákvörðun stjórn­valda um að setja tvo millj­arða í að aðstoða flótta­menn og styrkja ferla sem snúa að þjón­ustu við hæl­is­leit­endur er til marks um stjórn­völd taki nær for­dæma­lausan vanda alvar­lega og ætli að leggja sitt af mörk­um. Ekki eru nema þrjár vikur síðan stjórn­völd stefndu að því að taka á móti 50 flótta­mönn­um, en með mik­illi opin­berri umræðu og upp­lýs­ingum um þann gríð­ar­lega vanda sem hátt í 25 millj­ónir manna, sem flúið hafa stríðs­hrjáð svæði Sýr­lands, Íraks og Afganistan, standa frammi fyr­ir, þá breytt­ust áform­in.

Á til­tölu­lega skömmum tíma, innan við þremur vik­um, hafa stjórn­völd ákveðið að marg­falda aðstoð­ina frá því sem áður hafði verið ákveð­ið, og eiga þau hrós skilið fyrir það. Það flókn­asta er vita­skuld eft­ir, sem er fram­kvæmdin á mál­inu öllu og góð og mann­úð­leg mót­taka fyrir flótta­menn­ina sem hingað munu koma og hefja nýtt líf.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði vand­ann umfangs­mik­inn, en að Ísland myndi leggja sitt af mörkum og að sú aðstoð gæti jafn­vel orðið öðrum þjóðum fyr­ir­mynd. „Með starfi nefnd­­ar­inn­ar og fjölda fólks sem er búið að aðstoða okk­ur í þess­­ari vinnu, bæði í ráðu­neyt­um og eins hinum ýmsu fé­laga­­sam­tök­um, er þó búið að tak­­ast að setja sam­an áætl­­un sem við höf­um mikla trú á og telj­um að muni stand­­ast all­an sam­an­b­­urð við það sem aðrar þjóðir eru að gera til þess að tak­­ast á við þetta mikla vanda­­mál og geti jafn­­vel orðið öðrum hvatn­ing,“ sagði Sig­mundur Dav­íð, sam­kvæmt end­ur­sögn mbl.­is.

Auglýsing

Stjórn­völd eru með þess­ari fram­taks­sem­i að sýna metnað og mannúð í verki, og ljóst að ef umfang þeirrar aðstoðar sem Ísland ætlar að leggja til þessa gríð­ar­lega mikla vanda sem alþjóða­sam­fé­lagið stendur frammi fyr­ir, verður í takt við það sem Sig­mundur Davíð lýs­ir, þá má horfa til þess­ara ákvarð­ana með stolti.

Það má samt ekki gleyma því að margar þjóðir hafa nú þegar gripið til gríð­ar­lega umfangs­mik­illa aðgerða til að koma til móts við flótta­menn, ekki síst þá sem hafa kom­ist alla leið til Evr­ópu frá stríðs­hrjáðum svæð­um. Ef að Ísland ætlar að taka á móti jafn mörgum hlut­falls­lega og Þjóð­verjar hafa ákveðið að taka á móti á þessu ári, þá munu 3.247 flótta­menn koma hing­að, að því er Þröstur Freyr Gylfa­son, stjórn­mála­fræð­ingur og ráð­gjafi, nefndi á Face­book síðu sinni í gær. Ef vel á að takast til í þessu flókna máli mun reyna á sam­stöðu stjórn­mála­manna þvert á flokkslínur og sveit­ar­fé­lög, en kannski umfram allt góðan vilja til þess að rétta fram útrétta hjálp­ar­hönd til fólks í neyð.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None