Grímsstaðir sem þjóðareign - Gæti orðið umdeilt í þinginu

9555631404_e663c5b735_z.jpg
Auglýsing

Fram er komin þings­á­lykt­un­ar­til­laga þar sem skorað er á rík­is­stjórn­ina að beita sér fyrir því að jörðin Gríms­staðir á Fjöllum verði keypt af rík­inu og hún verði þannig þjóð­ar­eign. Þing­menn­irnir Ögmundur Jón­as­son og Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, bæði frá Vinstri græn­um, eru flutn­ings­menn til­lög­unn­ar. ­Fyr­ir­liggj­andi þings­á­lykt­un­ar­til­laga var síð­ast flutt sem 55. mál á 144. lög­gjaf­ar­þingi af núver­andi flutn­ings­manni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem málið kemur fram á þingi, en mikil umræða skap­að­ist um jörð­ina eftir að kín­verski fjár­festir­inn Huang Nubo sýndi því áhuga að kaupa stóran hluta henn­ar, og byggja upp ævin­týra­heim fyrir ferða­menn. Málið var afar umdeilt á Alþingi þegar það kom upp, og skók rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur, þar sem deildar mein­ingar voru um málið meðal ráð­herra.

Áhugi Nubos á svæð­inu virð­ist ekki vera fyrir hendi leng­ur. Lík­lega hefur þar vegið þyngst að málið sætti and­stöðu og þá voru áætl­anir hans ekki metnar trú­verð­ugar af öllum sem þær skoð­uðu. Þá komu einnig fram þau sjón­ar­mið að ekki væri æski­legt að fjár­festir frá útlöndum eign­að­ist svo stóran hluta af Íslandi.

Stór hluti Gríms­staða hefur árum saman verið til sölu, og er enn. Jörð­in, sem er ein sú stærsta á Íslandi, er 306 fer­kíló­metrar en sá hluti hennar sem er til sölu er 228 fer­kíló­metr­ar. Ásett verð á þeim hluta er 980 millj­ónir króna. Ljóst er að íslenska ríkið þyrfti að greiða eig­endum Gríms­staða háar fjár­hæðir fyrir því að eign­ast hana, en sé mið tekið af þessu ásetta verði, fyrir alla jörð­ina, þá er verð­mið­inn nálægt 1,25 millj­örðum króna.

Auglýsing

Spurn­ingin er hvernig rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir munu taka á mál­inu, því síð­ast þegar var til umræðu í þing­inu mynd­uðu þing­menn sér skoð­anir á því þvert á flokkslín­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None