Hagfræðingarnir tala út og suður - Hvar er æskilegt að hafa gengið?

Auglýsing

Nú er komin upp sú leiða staða að stýri­vextir eru að hækka hratt eftir að samið var um miklar launa­hækk­anir á vinnu­mark­aði, langt umfram það sem fram­leiðni í hag­kerf­inu bendir til þess að sé hægt að mati Pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands. Hún sér verð­bólgu í kort­unum og bregst við með vaxta­hækkun til að slá á eft­ir­spurn. Stýri­vextir orðnir 5,5 pró­sent, en verð­bólgan mælist 1,9 pró­sent, tölu­vert undir 2,5 pró­sent mark­miði seðla­bank­ans sam­kvæmt lög­um.

Gengið mót­ist af raun­hag­kerf­inu



Það verður að segj­ast eins og er, að það er svo­lítið óhugn­an­leg staða sem nú er komin upp í hag­kerf­inu. Kynnt hefur verið áætlun um afnám eða losun fjár­magns­hafta, sem virkar trú­verðug og hefur verið almennt vel tek­ið, hér á landi og erlend­is. Eitt af grund­vall­ar­at­rið­u­m þeirrar áætl­un­ar, að því er fram kom í máli Sig­urðar Hann­es­son­ar, stærð­fræð­ings, er að gengi krón­unnar verði látið mynd­ast af gangi mála í raun­hag­kerf­inu, þegar helstu los­un­ar­að­gerðir hafa verið fram­kvæmd­ar.

Spurn­ingin sem vaknar hjá mér er hvort þetta verði raun­in, eða hvort Seðla­banki Íslands muni nýta sjóði sína (al­menn­ings) óspart í að halda geng­inu á þeim stað þar sem hann telur skyn­sam­leg­ast og best að hafa það.

Miðað við það að nýrri stoð hefur nú verið rennt undir gjald­eyr­is­inn­flæði í raun­hag­kerfið frá því fyrir höft, með ferða­þjón­ust­unni, þá virð­ist blasa við að gengi krón­unnar ætti að  styrkj­ast veru­lega frá því sem það er nú, það er ef gengið mun ekk­ert veikj­ast í los­un­ar­að­gerð­un­um. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefur verið skýr og afdrátt­ar­laus þegar hann tjáir sig um það, hvort gengi krón­unnar muni veikjast, og sagt að það verði ein­fald­lega ekki látið ger­ast.

Auglýsing

Mörg sjón­ar­mið



Nú er síðan Ásgeir Jóns­son hag­fræð­ingur búinn að segja að ein helsta hættan sem hag­kerfið standi frammi fyr­ir, sé of mikil styrk­ing krón­unnar á næst­unni. Heiðar Már Guð­jóns­son hag­fræð­ingur segir síðan í dag, að seðla­bank­inn sé mark­visst að halda lífs­kjörum almenn­ings niðri með því að halda geng­inu veiku, evr­unni í kringum 150 krónur (er 146 í dag). Þetta sé óþol­andi þjónkun við erlenda spá­kaup­menn, betra væri að leyfa geng­inu að styrkj­ast.

Þessu sam­hliða hefur svo  verið athygl­is­vert að fylgj­ast með mál­efna­legri rit­deilu hag­fræð­ing­anna Ólafs Mar­geirs­sonar og Ásgeirs Dan­í­els­sonar, en sá fyrr­nefndi heldur því fram, með nokkuð ítar­legum rök­um, að vaxta­stefna Seðla­bank­ans virki ekki og vaxta­hækkun búi til verð­bólgu, á meðan Ásgeir, sem er einn af helstu sér­fræð­ingum seðla­bank­ans, heldur hinu gagn­stæða fram, einnig með ítar­legum rök­um.

Hag­fræð­ing­arnir eru margir og skoð­anir þeirra á því hvert efna­hags­málin eru að fara jafn­vel enn fleiri. Ómögu­legt er að fylgja þeirra spá­dómum eða veg­vísi, virð­ist vera. Þeir tala út og suð­ur. En hvað er þá að fara ger­ast?

Veð­mál



Von­andi gera stjórn­mála­menn og Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands­ ­sér grein fyrir því að allt hag­kerfið er undir í kom­andi skref­um, og almanna­hags­munir þar með. Verð­hjöðnun er ekki góð fyrir launa­fólk sem er með vísi­tölu­tengd laun, svo dæmi sé tek­ið, og allir þekkja afleið­ingar of mik­illar verð­bólgu. Það hefur verið hinn íslenski veru­leiki svo lengi sem elstu menn muna.

Hvað leyn­ist bak við hafta­tjöld­in, þegar þau verð dregin frá, er nú orðið að mik­il­væg­u veð­máli hjá almenn­ingi og fyr­ir­tækjum og leið­sögn hag­fræð­inga er um það bil það óljós­asta sem hægt er að taka mið af.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None