Hið sérstaka samband Sigmundar Davíðs og Bylgjunnar

Sigmundur
Auglýsing

Í síð­ustu viku reyndi stjórn­ar­and­staðan að fá Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra í sér­staka umræðu um verð­trygg­ingu á Alþingi. Afnám verð­trygg­ingar var enda eitt hel­sta ­kosn­ing­ar­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sig­mundur Davíð sagði í aðdrag­anda ­síð­ustu kosn­inga að afnám hennar væri ein­falt. Verð­trygg­ing gegnir þrátt fyrir þann ein­fald­leika enn jafn­stóru hlut­verki í efna­hags­legum veru­leika Íslend­inga í dag og hún­ ­gerði vorið 2013.

Til­laga var felld og kom Sig­mundur Davíð þeim skila­boðum á fram­færi að hann teldi að afnám verð­trygg­ingar væri á borði Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.  Hann ætl­aði sér ekki að ræða hana með­ þessum hætti við stjórn­ar­and­stöð­una.

Auglýsing

Sama dag og til­lagan var felld mætti for­sæt­is­ráð­herra hins ­vegar í við­tal við útvarps­menn­ina Heim­i Karls­son og Gunn­laug Helga­son í Bít­inu á Bylgj­unni og rabb­aði við þá um verð­trygg­ingu.

Þessi staða skap­aði, enn og aft­ur, umræðu um hið sér­staka ­sam­band sem Sig­mundur Davíð á við útvarps­stöð­ina Bylgj­una. Tíðir gestir þar hafa ekki kom­ist hjá því að heyra umkvart­anir ann­arra ljós­vaka­miðla, sem þríf­ast á við­tölum og við­brögðum við tíð­ind­um, yfir því að Sig­mundur Davíð mæti svo oft í spjall á Bylgj­unni að hann sé nán­ast eins og gesta­stjórn­andi í nokkrum mis­mun­andi þáttum sem á dag­skrá hennar eru.

Til að rök­styðja þessa til­finn­ingu var grein­ing­ar­deild bak­her­berg­is­ins kölluð út til að telja tíðni sam­tala sem Sig­mundur Davíð á við þátta­stjórn­endur á Bylgj­unni. Á meðal þess sem fram kemur í nið­ur­stöðum hennar er að ­for­sæt­is­ráð­herra hafi verið til við­tals í morg­un­þætt­inum Bít­inu alls tíu sinnum frá því í des­em­ber 2013. Þar af hefur hann rætt við stjórn­endur morg­un­þátt­ar­ins sex sinnum á þessu ári og alls þrisvar sinnum frá því í lok ágúst. 

Frá því að Sig­mundur Davíð tók við emb­ætt­i ­for­sæt­is­ráð­herra vorið 2013 hefur hann alls rabbað við umsjón­ar­menn Reykja­vík­ ­Síð­degis 26 sinn­um, þar af níu sinnum á þessu ári. Þá er Sig­mundur Davíð einnig ­tíður gestur Sprengisands, sem er á dag­skrá á sunnu­dög­um, og var meðal ann­ars þar um liðna helgi.

Það er auð­vitað hið besta mál að for­sæt­is­ráð­herr­ann tjái sig sem oft­ast og honum er full­frjálst að velja þá vett­vanga sem hann gerir slíkt á. Hvort tíðni þeirra við­tala sem for­sæt­is­ráð­herra veitir á Bylgj­unni sé óeðli­leg skal einnig ósagt lát­ið. En ljóst er að honum virð­ist líða betur með dag­skrár­gerð­ar­mönnum þar en víða ann­ars stað­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None