Hugmynd Frosta vekur athygli - En ríkisstjórnin hefur allt annað á teikniborðinu

10054231025_e67229c172_z.jpg
Auglýsing

Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ítrekað sett fram hug­myndir um breyt­ingar á fjár­mála­kerf­inu sem hafa vakið nokkra athygli og umræðu þegar þær koma fram. Þannig var það með hug­myndir hans og margra ann­arra um betra pen­inga­kerfi, og grund­vall­ar­breyt­ingu á pen­inga­stefn­unni, og síðan nú fyrir skemmstu má segja að hann hafi aftur komið fram með hug­mynd sem varðar fjár­mála­kerf­ið, sem telst allrar athygli­verð.

Hún miðar að því að gera Lands­bank­ann, sem íslenska ríkið á um 98 pró­sent hlut í núna, að sam­fé­lags­banka sem hafi öðru fremur hags­muni íslenskra neyt­enda í fyr­ir­rúmi, og bjóði hag­stæð lána­kjör á kostnað þess að hafa gróða­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi.

Einn þeirra sem hefur tekið undir þessar hug­myndir er Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og segir hann þær allra athygli­verð­ar.

Auglýsing

Aug­ljós­lega eru þessar hug­myndir Frosta, sem eru ekki nýjar af nál­inni, ekki í hávegum hafðar hjá rík­is­stjórn­inni og þeim ráð­herrum sem stýra efna­hags­mál­unum á borði stjórn­mál­anna. Hug­mynd Frosta byggir á þeirri grund­vall­ar­hug­mynd að bank­inn verði í sam­fé­lags­legri eigu og starfi öðru fremur fyrir sam­fé­lag­ið, og láti trausta fjár­hags­stöðu koma beint fram í lána­kjörum og þjón­ustu, fremur en að góðum afkomu­töl­um.

Rík­is­stjórnin hefur aftur á móti hug á því að selja hlut í Lands­bank­an­um, eins og Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, hefur raunar ítrekað í nokkur skipti. Í lögum hefur um nokk­urt skeið verið heim­ild til að selja að allt að 30 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um, og nú er að því stefnt að selja hlut í bank­anum sam­hliða skrán­ingu hans á mark­að.

Þessar ráða­gerðir fara þvert gegnum hug­myndum Frosta, sem þó hafa fengið jákvæðar und­ir­tektir víða. Spenn­andi verður að sjá hvort stjórn­ar­flokk­arnir muni ganga í takt þegar þessar hug­myndir verða ræddar á kom­andi þing­vetri, og sú stund nálg­ast að ákvörðun er tekin um sölu á hlut í bank­an­um.





Hug­mynd Frosta Sig­ur­jóns­sonar um að Lands­bank­inn verði ekki einka­væddur heldur gerður að sam­fé­lags­banka í þágu hags­muna...

Posted by Össur Skarp­héð­ins­son on Monday, Sept­em­ber 7, 2015





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None