Illugi reynir að hanna atburðarrás til að bjarga pólitísku lífi sínu

illugi-mynd.jpg
Auglýsing

Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, reynir nú að hanna atburða­rás til að bjarga póli­tísku lífi sín­u. Á­stæða þess að Ill­ugi er í vanda er sú hann þáði per­sónu­legan fjár­stuðn­ing frá Hauki Harð­ar­syni, stjórn­ar­for­manni fyr­ir­tæk­is­ins Orku Energy, á árinu 2014. Sá per­sónu­legi fjár­stuðn­ingur fólst í því að Haukur keypti íbúð Ill­uga af honum í fyrra­sumar og leigði honum hana síðan aft­ur. Ill­ugi var þegar orð­inn ráð­herra þegar hann seldi íbúð­ina, en það þurfti hann að gera eftir að „nokkur fjár­hags­leg áföll“ höfðu dunið á hon­um. Þetta þykir flestum sýna að Ill­ugi sé fjár­hags­lega háður Hauki.

Það sem gerir þau tengsl tor­tryggi­leg er að Ill­ugi tók umræddan Hauk, núver­andi leigu­sala sinn, með í opin­bera heim­sókn til Kína í mars 2015, en Orka Energy stundar umfangs­mikla jarð­varma­starf­semi þar í landi. Allir sem gert hafa við­skipti í Kína vita hversu margar dyr það getur opnað að sýna fram á tengsl við ráða­menn, á borð við ráð­herra landa. Og Ill­ugi, sem hefur ekk­ert með orku­mál að gera í rík­is­stjórn­inni, liggur undir ámæli um að hafa opnað slíkar dyr fyrir Hauk og fyr­ir­tæki hans í Kína.

Ill­ugi hefur reynt að stýra umræð­unni um þessi mál, fyrst með því að sýna ætlað frum­kvæði að tjá sig um það í hádeg­is­fréttum RÚV 26. apríl síð­ast­lið­inn. Mjög skömmu síðar kom reyndar í ljós að fjöl­mið­ill­inn Stundin hafði árang­urs­laust reynt að fá upp­lýs­ingar um tengsl hans við Orku Energy í aðdrag­anda þess frum­kvæð­is.

Auglýsing

Næst reyndi Ill­ugi að þegja af sér óþæg­ind­in. Hann svar­aði ekki fyr­ir­spurnum fjölda fjöl­miðla mán­uðum saman og neit­aði að mæta í ljós­vaka­við­töl nema að þeir sem tóku við­tölin sam­þykktu að ræða ekki Orku Energy. Því miður urðu ein­hverjir fjöl­miðla­menn við þeirri frá­leitu und­an­þágu­beiðni.

Í þess­ari viku var þó orðið ljóst að Ill­ugi kæm­ist ekki upp með að þegja málið af sér. Þá valdi hann að fara í einka­við­tal við Frétta­blaðið, sem tekið verður af blaða­mönnum sem hafa ekk­ert fjallað um sam­skipti hans við Orku Energy. Frétta­maður RÚV gerði hins vegar vel í dag og sat fyrir Ill­uga í þing­inu til að spyrja hann út í mál­ið. Í klaufa­legum til­svörum ráð­herr­ans kom skýrt fram hver rauði þráð­ur­inn í nýrri hönnun á atburð­ar­rásinni á að vera.

Þar not­aði Ill­ugi það sem rök fyrir fyr­ir­greiðslu sinni gagn­vart Orku Energy að hann hafi ekki gert neitt annað en það sem ráð­herrar í síð­ustu rík­is­stjórn hefðu gert. Bæði Össur Skarp­héð­ins­son og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir hefðu verið við­stödd und­ir­rit­anir samn­inga á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. Mun­ur­inn er hins vegar aug­ljós­lega sá að Ill­ugi er fjár­hags­lega háður stjórn­ar­for­manni við­kom­andi fyr­ir­tæk­is, á meðan að eng­inn ráð­herra fyrri rík­is­stjórnar var það.

Ill­ugi ætlar líka að halda sig við að ekk­ert óeðli­legt hafi verið við það að orku­út­rás­ar­fyr­ir­tæki með enga starf­semi á Íslandi hefði verið í föru­neyti mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í Kína­ferð hans í mars. Það rök­styður hann meðal ann­ars með því að full­trúar frá háskólum lands­ins hefðu verið með í för.

Og rús­ínan í pylsu­end­anum er sú að Ill­ugi ætlar að þræta fyrir að hann sé fjár­hags­lega háður Hauki Harð­ar­syni með vís­un í reglur GRECO, ríkja­hóps geng spill­ingu sem starfar innan Evr­ópu­ráðs­ins. GRECO hefur reyndar árum sam­an­ lagt til að tryggt verð­i að laga­á­kvæði um mútur og áhrifa­kaup í almennum hegn­ing­ar­lögum næðu einnig til þing­manna á Íslandi. Stjórn­völd hér hafa ekki orðið við þessum til­mæl­um.

Krafl Ill­uga nú minnir óneit­an­lega á til­raunir sam­flokks­konu hans og fyrrum ráð­herra, Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, þegar hún reyndi að hanna atburða­rás sér í hag í leka­mál­inu. Sú hönnun Hönnu Birnu fólst í að ákveða skýra útgáfu af sínum sann­leik í mál­inu, velja valda fjöl­miðla til að koma honum á fram­færi, sýna svo heilaga vand­læt­ingu gagn­vart þeim sem dirfð­ust að efast um hana og djöfl­að­ist loks í öllum máls­að­ilum bak­við tjöldin til að reyna að fá sínu fram. Stra­tegía Hönnu Birnu gekk hins vegar ekki upp líkt og allir vita og á end­anum þurfti hún að segja af sér emb­ætti.

Ólík­legt verður að telj­ast að Ill­uga farn­ist betur í sinni bar­áttu gegn því sem blasir svo aug­ljós­lega við öllum sem vilja sjá. Að það sé fjarri því hafið yfir allan grun að ráð­herr­ann hafi veitt manni, sem bjarg­aði honum úr mik­illi fjár­hags­legri klíp­u, ­fyr­ir­greiðslu til að liðka fyrir við­skiptum í Kína.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None