Ísland er gott land - En „mannauðsstjórinn“ hefur verk að vinna

14509527283_23142a391a_z.jpg
Auglýsing

Ísland er gott land. Sú setn­ing mætti kannski heyr­ast oft­ar, í dag­legu þrasi. En samt má ekki gleyma því að gagn­rýnin umræða er bein­línis til þess að bæta og styrkja. Gera gott betra.

Inn­við­irnir á Íslandi eru sterkir, enda eru þeir að miklu leyti bundnir við nátt­úr­unnar gæði. Án þess að eyða fleiri orðum í það, að þessu sinni, þá eru deilur um hvernig eigi að haga auð­linda­nýt­ingu á Íslandi, almennt, við­var­andi og langt í að það sjái fyrir end­ann á þeim. Það skiptir miklu máli, að stjórn­mála­flokkar hafa ekki komið sér saman um sam­eig­in­lega sýn á þau mál, eins og þekk­ist víða um lönd, meðal ann­ars í Nor­egi.

En það sem eðli­legt er að velta fyrir sér, sér­stak­lega varð­andi tím­ann frá hruni fjár­mála­kerf­is­ins haustið 2008, er hvernig mannauður íslensku þjóð­ar­innar er að þró­ast. Hér býr vel menntað fólk, Íslend­ingum fjölgar jafnt og þétt og ald­urs­sam­setn­ingin er góð, sé horft til margra ann­arra þjóða. Frá því árið 2008 hefur Íslend­ingum fjölgað um tæp­lega fimmtán þús­und.

Auglýsing

En hag­vöxtur fram­tíð­ar­inn­ar, og atvinnu­tæki­fær­in, munu ekki byggja á sterkum innviðum auð­lind­anna nema að litlu leyti. Ástæðan er sú að auð­lind­irnar eru tak­mark­að­ar, öll eggin geta ekki verið í auð­linda­körf­unni. Vöxt­ur­inn og tæki­fær­in, verða bundin við alþjóða­væddan við­skipta­heim þar sem rann­sókn­ar- og þekk­ing­ar­starf, ekki síst í ýmsum tækni­grein­um, er grunn­ur­inn.

Því miður hefur ekki verið fylgst náið með því, hvernig mannauður þjóð­ar­innar hefur þró­ast frá hruni fjár­mála­kerf­is­ins. Þjóð­skrá heldur ekki nákvæm­lega utan um þessa þró­un, og ekki heldur Hag­stofa Íslands. Það er að segja, hvaða menntun og reynslu fólk hefur sem flutt hefur frá land­inu, og síðan hvaða menntun og reynslu fólkið hefur sem flutt hefur til lands­ins. Margt bendir til þess að mörg lág­launa­störf, meðal ann­ars tengd ferða­þjón­ustu, hafi orðið til, á meðan betur borguð sér­hæfð störf, til dæmis fyrir iðn- og tækni­menntað fólk, hafa farið úr landi.

Þetta eru ekki góð skipti, en von­andi ber okkur gæfa til þess að leggj­ast yfir það, hvernig best er að efla þekk­ing­ar­iðn­að­inn á Íslandi, svo að hann geti orðið stoðin undir hag­kerf­inu í fram­tíð­inni, með auð­linda­drif­inni atvinnu­starf­semi. Lítil þjóð, sem aðeins telur 329.740 þarf á því að halda, að móta skýra stefnu um hvernig Ísland getur orðið enn betra. Mannauðs­stjórn­unin er þar lyk­il­at­riði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None