Keisarinn í húsnæðismálum er kviknakinn

Guðmundur Guðmundsson
14932775807-7d53d2dfb1-z.jpg
Auglýsing

Nýtt fjár­laga­frum­varp stað­festir ára­tuga aðskiln­að­ar­stefnu stjórn­valda í hús­næð­ispóli­tík. Frum­varpið fylgir hefð, sem má rekja aftur til upp­hafs stríðs­ár­anna á Íslandi. Hefðin er að með­höndla leigj­endur eins og úti­gangs­hross í íslenskum hús­næð­is­mál­um.

Síð­ustu 75 ár hefur hlut­fall sér­eignar á íslenskum hús­næð­is­mark­aði verið með því hæsta sem þekk­ist á byggðu bóli. Þessi stað­reynd var einn stærsti orsaka­valdur íslensku fast­eigna­bólunnar sem sprakk í banka­hrun­inu 2008. Þá tóku bank­arnir með sér stokk­bólg­inn hús­næð­is­markað í fall­inu.

Þótt ótrú­legt megi virð­ast var fast­eigna­mark­að­ur­inn eða hús­næð­ispóli­tíkin aldrei rann­sökuð á sama hátt og hrun banka­kerf­is­ins. Þegar mið­bær Reykja­víkur brann til kaldra kola fyrir einni öld síðan breytt­ist bygg­inga­reglu­gerð bæj­ar­ins í kjöl­far brun­ans.

Auglýsing

Bannað var að byggja sam­föst timb­ur­hús vegna eld­hætt­u. Í yfir­færðri merk­ingu var hús­næð­is­mark­að­ur­inn end­ur­byggður í óbreyttri mynd eftir banka­hrun­ið.

Þessum mark­aði má í dag líkja við sam­stæðu af skrjáf­þurrum timb­ur­hjöllum rígnegldum við banka­kerf­ið. Íslenska hús­næð­is­mód­elið er í raun gjald­þrota. Birt­ing­ar­myndin er óvirkur Íbúða­lána­sjóð­ur, þús­undir yfir­skuld­settra heim­ila og hand­ó­nýtur leigu­mark­að­ur.

Engu að síður end­ur­byggja stjórn­völd þessa kerf­is­villu eins og ekk­ert hafi í skorist. Íslenskur leigu­mark­aður er ein stór skamm­tímaredd­ing, þar sem Pétur leigir Páli út íbúð sína í nokkra mán­uði í senn.

IMG_20150918_140208 1 Leigj­endur læstir úti­



Þessu ástandi vilja stjórn­völd við­halda með því að veita hús­næð­is­eig­endum skatta­af­slátt fyrir að leigja út hús­næði. Þetta er gott dæmi um hve pikk­föst stjórn­völd eru í hjól­förum sér­eigna­stefn­unn­ar. Það vottar ekki fyrir hug­ar­fars­breyt­ingu í hús­næð­is­mál­um.

Allt frá hruni hafa stjórn­völd eytt millj­arða­tugum af almannafé til að við­halda ýktu sér­eign­ar­hlut­falli á hús­næð­is­mark­aði. Skulda­leið­rétt­ingin ein og sér myndi duga fyrir upp­bygg­ingu á stóru íbúð­ar­hverfi á borð við Breið­holt, með þús­undum íbúða.

Á hinum end­anum dugar fjár­veit­ing til félags­legra íbúða fyrir einni íbúð­ar­blokk. Þörfin á ódýrum íbúðum telur tugi þús­unda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ekk­ert bólar á trú­verð­ugum áætl­unum um upp­bygg­ingu „Non­profit“ leigu­mark­aðar sem er vel þekktur t.d. í Dan­mörku, Sví­þjóð og Þýska­landi.

Fjór­flokk­ur­inn er buxna­laus í hús­næð­is­mál­um. Lof­orð í hús­næð­is­málum um upp­byggg­ingu á leigu­mark­aði eru samin af almanna­tengl­um.

Þessi Pótem­kín­tjöld eru svo geymd í skúffu vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins milli kosn­inga. Fjár­laga­frum­varpið fylgir þeirri hefð full­kom­lega.

Keis­ar­inn í hús­næð­is­málum er kviknakinn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None