Krónan gæti styrkst um tugi prósenta...nema að henni verði haldið veikri

kronurVef.jpg
Auglýsing

Eitt af því sem lítið hefur verið rætt um, einkum á vett­vangi stjórn­mál­anna, er hvaða veru­leiki getur beðið íslenska hag­kerf­is­ins og almenn­ings eftir að aðgerða­á­ætlun um losun hafta hefur verið fram­kvæmd.

kronueignir

Myndin sem hér er með­fylgj­andi (að ofan), og fengin er úr glæru­kynn­ingu fram­kvæmda­hóps­ins um losun hafta, sýnir stærstu hindr­an­irnar sem hrinda á úr vegi. Staða rík­is­sjóðs mun batna um 500 millj­arða króna, ef allt gengur eft­ir, sem er upp­hæð sem nemur 25 pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Stjórn­völd, í sam­vinnu við seðla­bank­ann, munu ákveða hvernig best er að nýta þessa fjár­muni, en hið aug­ljósa er að lækka skuld­ir, t.d. mikla upp­safn­aða skuld í líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu.

Auglýsing

Þá munu upp­boð brjóta niður snjó­hengju aflandskróna og minnka þannig þrýst­ing á krón­una, en sam­an­lagt er aðgerðin að styrkja íslenska hag­kerfið og stöðu rík­is­fjár­mála um 1.200 millj­arða króna, hvorki meira né minna. Það er upp­hæð sem nemur meira en helm­ingi árlegrar lands­fram­leiðslu hér á landi.

Meg­in­mark­miðið er að eftir standi íslenska hag­kerfið þannig, að gengi krón­unnar eigi að ráð­ast af „gangi mála í raun­hag­kerf­in­u“, það er í und­ir­stöð­unum og við­skiptum frá degi til dags. Þetta kom skýrt fram í máli dr. Sig­urðar Hann­es­son­ar, þegar hann kynnti aðgerða­á­ætl­un­ina í Hörpu­nni, 8. júní. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefur síðan sagt, að krónan muni ein­fald­lega ekki falla þegar höft verða los­uð. Þannig verði haldið um þræð­ina í mál­inu.

Ólíkt stöð­unni sem var fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, þá hefur útflutn­ings­hlið íslenska hag­kerf­is­ins styrkst veru­lega og raun­hag­kerfið þar með. Þar vegur ekki síst þungt marg­földun ferða­þjón­ust­unnar á skömmum tíma, en erlendir ferða­menn, sem hratt nálg­ast 1,5 milljón árlega, skilja eftir hund­ruð millj­arða hér á landi á hverju ári. Ferða­þjón­ustan er orðin mik­il­væg­ari en orku­geir­inn, álf­ram­leiðsla og sjáv­ar­út­veg­ur. Sam­an, með of hægt vax­andi alþjóða­geira og nýsköp­un, mynda þessir geirar nokkuð sterka heild.

Þegar búið er að styrkja hag­kerf­ið, eins og framan grein­ir, þar á meðal að létta þrýst­ingi á krón­una, þá virð­ist blasa við að krón­an ætti að styrkj­ast frá því sem nú er. Geng­is­vísi­talan er nú 195 stig, og hefur gengi krón­unnar styrkst nokkuð að und­an­förnu, þó Seðla­banki Íslands hafi beitt sér þannig á gjald­eyr­is­mark­aði að krónan hefur hald­ist veik­ari en hún hefði ann­ars ver­ið.

Vel má ímynda sér að geng­is­vísi­talan fari í um 155 stig á ekki of löngum tíma - ef geng­inu verður ekki haldið veiku með handafli seðla­bank­ans. Svo eitt­hvað sé nefnt. Þetta mundi þýða að evran myndi kosta 115 krónur en ekki 144 eins og nú.

Þó vafa­lítið hafi hag­fræð­ingar og stjórn­mála­menn margar og mis­mun­andi skoð­anir á þessum atriðum eins og flestum öðrum, þá væri fróð­legt að heyra nán­ari umræðu um það hvert gæti verið jafn­væg­is­gengið á krón­unni, að þeirra mati, eftir að aðgerða­á­ætl­un­inni hefur verið hrint í fram­kvæmd. Vissu­lega er óvissa um hvernig mark­að­ur­inn mun bregð­ast við, en það er ákveðin vís­bend­ing um hvernig þró­unin gæti verið að gengi krón­unnar eigi að ráð­ast af gangi mála í raun­hag­kerf­inu þegar áætl­un­inni hefur verið hrint í fram­kvæmd. Í því veð­máli þurfa almenn­ing­ur, fyr­ir­tæki og fjár­festar að taka þátt, til þess að geta hagað sínum fjár­málum með ábyrgum hætti. Því meiri upp­lýs­ingar sem liggja fyrir um hvar gengi krón­unnar gæti ver­ið, því betra.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None