Leiðréttingin hefur hverfandi áhrif á verðbólgu

Sigurður Már Jónsson
IMG-0231-1.jpg
Auglýsing

Vel heppnuð skulda­leið­rétt­ing rík­is­stjórn­ar­innar hefur farið mjög fyrir brjóstið á póli­tískum and­stæð­ingum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Eðli­legt er að umræða eigi sér stað um jafn stórt og flókið mál og Leið­rétt­ingin óneit­an­lega er. Lýð­ræð­is­leg ákvörðun var á sínum tíma tekin að lok­inni slíkri umræðu, bæði meðal þings og þjóð­ar.

Eitt af því sem huga þurfti að við útfærslu á Leið­rétt­ing­unni var að hún myndi ekki leiða til ofþenslu í hag­kerf­inu. Smíðuð var lausn sem tryggði það eins og kostur var, sér í lagi með mót­væg­is­að­gerðum á borð við sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið­inni. Sú leið hvetur til auk­ins sparn­aðar og dregur úr mögu­legri þenslu. Um 35 þús­und Íslend­ingar nýta sér þessa leið í hverjum mán­uði. Þá voru van­skil og greiðslu­jafn­að­ar­reikn­ingar greiddir upp áður en kom til höf­uð­stólslækk­un­ar.  Hvaða vit er í að láta van­skil hlað­ast upp á meðan höf­uð­stóll er greidd­ur?

Óhætt er að full­yrða að vel hafi tek­ist til, bæði hvað varðar lausn­ina, tækni­lega útfærslu hennar og þjóð­hags­legu áhrif­in. Í grein­ar­gerð með frum­varpi um Leið­rétt­ing­una var gerð grein fyrir mati Seðla­banka Íslands og Ana­lyt­ica á verð­bólgu­á­hrifum aðgerð­ar­inn­ar. Ana­lyt­ica gerði ráð fyrir 0,1% áhrifum á verð­bólgu til hækk­unar á árinu 2014. Seðla­bank­inn gerði ráð fyrir sömu verð­bólgu­hækkun á árinu 2014 og 0,4% yfir allt tíma­bil­ið.

Auglýsing

Þetta virð­ist hafa gengið eftir þó reyndar sé úti­lokað að segja með nákvæmum hætti til um hver áhrifin voru í reynd. Hrakspár spá­manna, m.a. Kjarn­ans, um stór­aukna verð­bólgu hafa aug­ljós­lega ekki gengið eft­ir. Verð­bólgu­vænt­ingar hafa ekki hækkað vegna Leið­rétt­ing­ar­innar sem senni­lega kemur til af ánægju mark­aðs­að­ila með fram­kvæmd henn­ar. Verð­bólga var á síð­asta ári og til þessa dags verið langt innan verð­bólgu­mark­miðs Seðla­bank­ans. Sú litla verð­bólga sem mælist vegna hús­næðis er ekki vegna Leið­rétt­ing­ar­inn­ar. Nær væri að líta til þess ástands sem er í miðbæ Reykja­víkur og nágrennis þar sem eft­ir­spurn, meðal ann­ars vegna upp­sveiflu í ferða­þjón­ustu, keyrir upp verð­ið. Aukið lána­fram­boð og skortur á íbúð­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa þar einnig áhrif.

Þann 27. mars sl. kynnti Kjarn­inn þá stór­frétt að Leið­rétt­ingin ýtti undir verð­bólgu.  Þá hafði verð­bólgan hækkað einn mán­uð­inn og var 1,6%, eða tæpu pró­sentu­stigi lægri en verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans. Ekki taldi Kjarn­inn það hins vegar frétt­næmt mán­uði síðar þegar verð­bólgan fór niður í 1,4%.

Það er ein­fald­lega frá­leitt að bera verð­bólgu­á­hrif Leið­rétt­ing­ar­innar saman við þá verð­bólguógn sem stafar af kjara­samn­ing­um. Þangað ættu tíð­inda­menn Kjarn­ans að beina sjónum sín­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None