Bragð er að þá bankinn finnur

Guðmundur Guðmundsson
sjoppuh--s.jpg
Auglýsing

Leigu­mark­að­ur­inn er fátækra­gildra nútím­ans. Nóg er um  nefnd­ir, en lítið sem ekk­ert um efndir af hálfu stjórn­valda. Þetta var efn­is­leg nið­ur­staða í nýlegu útvarps­við­tali við Hag­fræð­ing Lands­bank­ans. Umfjöll­un­ar­efnið var Íslenskur leigu­mark­að­ur.



Útvarpið tók nýlega annað við­tal við ung hjón. Hún lög­fræð­ingur í fastri vinnu, hann blaða­mað­ur. Þau eru hnot­sk­urn­ar­dæmi um stöðu ungs fólks á íslenskum hús­næð­is­mark­aði. Þau eiga tvö börn á unga aldri. Þau misstu nýlega leigu­í­búð og gerðu því kauptil­boð í 3ja her­bergja íbúð.  Verðið var 34 milj­ón­ir.




Tekjur í fjöl­skyld­unni eru yfir með­al­lagi, en hún taldi sér þó ekki fært að kaupa íbúð. Greiðslu­byrðin  hefði í þeirra til­felli orðið upp undir 300 þús­und á mán­uði. Með til­liti til verð­bólgu­á­hættu taldi parið íbúð­ar­kaup ekki áhætt­unnar virði.




Þessi tvö við­töl  eru góð dæmi um kerf­is­vill­una á íslenskum hús­næð­is­mark­aði. Ef vel er að gáð, þá er hug­mynda­fræðin í hús­næð­is­málum lands­ins algjör­lega óbreytt frá því fyrir hrun. Það var eng­inn lær­dómur dreg­inn af fast­eigna­bólunni sem sprakk framan í and­lit þjóð­ar­innar 2008. Hús­næð­is­málin eru sami grautur í sömu skál.




Fyrir hrun gengu bankar ber­serks­gang  á hús­næð­is­mark­aði með hömlu­lausri útlána­stefnu. Ódýru erlendu fjár­magni var hellt inn á hús­næð­is­mark­að­inn eins og olíu á eld. Af­leið­ingin var skörp og ósjálf­bær hækkun á fast­eigna­verði.




Sjö árum síðar má kalla stöð­una "2007, taka tvö" á hús­næð­is­mark­aði lands­ins. Sama Mata­dor-­spil er farið í gang. Erlent fjár­magn (í gegnum ferða­menn) þrýstir upp verði fast­eigna og leigu­verði í kjarna borg­ar­inn­ar. Líf­eyr­is­sjóð­ir, bankar og bygg­ing­ar­verk­takar ráða ferð­inni á meira eða minna einka­væddum mark­aði. Örlög almenn­ings eru í höndum fjár­mála­fé­laga með hús­næð­is­brask sem við­skipta­mód­el. Þau hugsa í árs­fjórð­ung­um.




Alveg eins og fyrir hrun er engin  sam­eig­in­leg sýn á hús­næðis og leigu­vanda­mál höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Sveit­ar­fé­lögin finna upp hjólið hvert í sínu horni í hús­næð­is­mál­um. Lausnir á leigu­vanda­málum eru í könnun og nefndum fram að kosn­ing­um. Í nýju borg­ar­skipu­lagi sést engin breyt­ing á þess­ari hugs­ana­villu.




Hús­næð­is­vandi og neyð­ar­á­stand á leigu­mark­aði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er ekk­ert nýtt vanda­mál. Það má rekja allt aftur til upp­hafs stríðs­ár­anna fyrir 75 árum síð­an. Ís­land hefur allan þann tíma verið eitt á báti í hús­næð­is­málum meðal nágranna­land­anna.




Hvergi á byggðu bóli er sér­eign jafn hátt hlut­fall af eigna­mark­aði og á íslandi. Í nágranna­lönd­unum eru sveit­ar­fé­lögin og aðrir lög­að­ilar umfangs­miklir leik­endur í bygg­ingu og rekstri leigu­í­búða fyrir almenn­ing. Í Sví­þjóð voru t.d. byggðar ein milljón leigu­í­búðir á árunum 1965 til 1975. Íbúð­irnar voru hugs­aðar sem hver önnur þjón­usta fyrir íbúa, og þjóna því hlut­verki enn, hálfri öld síð­ar.




Á Íslandi er sér­eign­ar­stefnan eins konar trú­ar­brögð sem ekk­ert pólítískt afl virð­ist geta hagg­að. Hús­næðisekla og ónýtur leigu­mark­aður eru eins konar nátt­úru­lög­mál. Er það ekki merki­legt á einu strjál­býlasta svæði Norð­ur­landa, með nægt bygg­ing­ar­land, gg ódýra orku til upp­hit­un­ar, sem er víða ann­ar­staðar einn stærsti póst­ur­inn í rekstri á hús­næði til lang­frama?




Er kom­inn tími til að þriðj­ungur heim­ila lands­ins (leigj­end­ur) stofni með sér stjórn­mála­flokk?




Hús­næð­is­flokk­inn? Með þann til­gang einan að koma alþýðu lands­ins í húsa­skjól?




Og dúka af veislu­hlað­borði banka, bygg­ing­ar­verk­taka og líf­eyr­is­sjóða á hús­næð­is­mark­aði ungs fólks?


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None