Ráðherrar verða að vera fjárhagslega sjálfstæðir

illugi-gunnarsson.jpg
Auglýsing

Frá því að Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, opin­ber­aði slæma fjár­hags­stöðu sína og fjöl­skyldu sinn­ar, hafa margar spurn­ingar vaknað hjá almenn­ingi sem er ósvarað enn.

Ill­ugi upp­lýsti sjálfur í við­tali við RÚV í apr­íl að hann hefði selt ­í­búð sína  við Rán­ar­götu til stjórn­ar­for­manns fyr­ir­tæk­is­ins Orku Energy, og leigir hann nú íbúð­ina af hon­um, þar sem hann hefur ekki efni á því að kaupa það, sam­kvæmt hans eigin frá­sögn. Kaupin voru upp á 53 millj­ónir króna. Er það slæm fjár­hags­staða hans sjálfs og fjöl­skyld­unn­ar, sem gerir það að verk­um, og svona er um hnút­ana búið.

Ill­ugi neitar því, að hann sé undir hæl fjár­fest­is­ins í Orku Energy, þrátt fyrir þessa stöðu, en sé mið tekið af fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um þetta mál, þá eru ekki öll kurl komin til grafar enn.

Auglýsing

Það sem er eðli­legt er að velta fyrir sér, í þessu sam­hengi, er staða ráð­herr­ans, óháð stefnu­málum og mál­flutn­ingi. Þegar fjár­hags­legt sjálf­stæði þing­manna og ráð­herra er tví­sýnt og veik­burða, er mik­il­vægt að það sé uppi á borðum strax og sú staða skap­ast. Þannig var það ekki í til­felli Ill­uga. Hann upp­lýsti ekki um málið strax.

Almenn­ingur verður að geta treyst því að fjár­hags­leg staða þing­manna og ráð­herra sé góð, og sjálf­stæði þeirra sé tryggt. Ill­ugi hefur upp­lýst um að hann var í það slæmri stöðu, að hann missti hús­ið, eins og áður seg­ir. Í ljósi þess að hann er að störfum fyrir almenn­ing, meðal ann­ars við að úthluta fé úr sam­eig­in­legum sjóð­um, þá er eðli­legt og rétt­látt að spyrja hvort hann ráði við það verk­efni, ef hann getur ekki stýrt eigin per­sónu­legu fjár­mál­um.

Raunar er Ill­ugi ekki eini ráð­herr­ann sem hefur fjallað opin­ber­lega um slæma fjár­hags­stöðu sína, því það hefur Eygló Harð­ar­dótt­ir, ráð­herra félags- og vel­ferð­ar­mála, líka gert. Í pistli sem hún skrif­aði í júní nefndi hún sér­stak­lega að hún hafi lengi ekk­ert kunnað með pen­inga að fara. „Lán varð nán­ast að lukku í mínum huga. Ef það var eitt­hvað sem mig lang­aði í, þá rölti ég í næstu lána­stofnun og við­kunn­an­legi þjón­ustu­full­trú­inn bjarg­aði því fyrir mig.  Yfir­drátt­ar­lán brú­aði bilið þar til LÍN borg­aði út náms­lán­in, banka­lán dekk­aði það sem upp á vant­aði, 90% verð­tryggt íbúða­lán hjálp­aði til við fyrstu kaupin og 100% geng­is­tryggður bíla­samn­ingur redd­aði bíln­um.  Í fæstum til­vikum átti ég eitt­hvað sparifé upp í fjár­fest­ingar mín­ar, hvort sem um var að ræða mennt­un­ina, bíl­inn eða íbúða­kaup­in,“ sagði Eygló meðal ann­ars í pist­li, með fyr­ir­sögn­inni Er lán lukka? Í honum varar hún við of mik­illi skuld­setn­ingu.

Eygló í pontu. Eygló í pont­u.

Eins og áður seg­ir, þá verður almenn­ingur að geta treyst því að ráð­herrar og þing­menn, sem sinna því mik­il­væga hlut­verki að móta reglu­verk sam­fé­lags­ins með lögum og fram­kvæma vilja Alþingis með fjár­út­hlut­unum úr rík­is­sjóði, séu fjár­hags­lega sjálf­stæðir og helst einnig með lág­marks skyn­semi þegar kemur að per­sónu­legum fjár­mál­um. Því það er ekki hægt að gera kröfu um að stjórn­mála­menn sýni mikla ábyrgð í fjár­hags­stjórn­ ­fyrir almenn­ing, ef þeir ráða ekki við þau verk­efni fyrir þá sjálfa á sama tíma.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None